Færsluflokkur: Bloggar

Gott mál

Það þarf auðsjáanlega að taka svolítið harðar á afbrotamönnum landsins, ekki satt?

Tindur Jónsson, var td. dæmdur í sex ára fangelsi árið 2006 en nú árið 2008 er hann tekinn fastur úti í bæ. Ég er ekki góð í reikningi en það bara geta ekki verið sex ár frá því árið 2006, er það nokkuð?

Afbrotamenn landsins eru fáir en knáir, til að koma reglu á hlutina þarf að taka á þeirra málum með hörðum höndum. Þeim þarf að vera settur strangur og stöðugur rammi.

Ég fagna í hvert sinn sem að afbrotamaður er tekinn. Ekki að ég vilji honum/henni illt, en ég vill bara ekki að hann/hún fái að ganga laus til að gera öðrum illt.

 


mbl.is Höfuðpaurar á reynslulausn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott hjá Eyjarmönnum! - Knús hér og faðmlag þar - Börnin okkar

Það er vonandi að þessar aðgerðir hjá Eyjarmönnum verði til þess að fleiri bæir geri líka hluti fyrir sitt fólk.

-------------------------------------------------------------------

Það er sorglegt hvernig komið er fyrir fjármálaheiminum, heiminum okkar. En yndislegt er að sjá hvað þetta gerir fólki. Þá er ég auðsjáanlega ekki að tala um stress og áhyggjur, hræðslu og vanmáttarkennd.

Nei ég er að tala um að nú er fólk farið í ríkara mæli að sýna náunganum stuðning, góða athygli og hlýju. Þetta þjappar okkur samann.

Í mínum minningum var Íslenska þjóðin þannig fyrir tíma peninganna. Fólk hefur undanfarin ár gleymt sér í vinnu, stressi og þörf fyrir stærri, fleiri, hraðari og dýrari hlutum. Gleymt náunganum.

Undanfarna daga hefur fólk verið að sýna meyri kærleika, bæði hér á blogginu sem og annarstaðar. Blog.is brást hratt við og bætti faðmlagshnapp við þá möguleika sem að við höfum hér á blogginu. Ég nýtti mér þann hnapp vel og faðmaði alla mína vini, það er ekki alveg jafn innilegt og alvörufaðmlag en hugsunin á bak við það er sú sama. Að gefa af sér. Ég hef einnig fengið slík faðmlög og þykir mér vænt um.

Börnin okkar hafa ekki hlotið eins góðs af þessu góðæri eins og margir vilja trúa. Jú, jú, þau eiga líka, stærri, fleiri, hraðari og dýrari hluti. En er það það sem að börnin okkar þurfa?

Nei! Ekki held ég svo. Ég held að börnin okkar þurfi meira á okkur foreldrunum, ömmu og afa, frænku og frænda, að halda en öllum þessu nýju tækjum og tólum.

Stressið í foreldrunum, gerir börnunum ekkert gott!

Að eiga minni tíma með foreldrunum, gerir börnunum ekki gott!

Að missa virðinguna fyrir peningum og hlutum, gerir börnunum okkar ekki gott!

Ég heyri ansi oft "Það er eins og að það vanti þakklætið". Við höfum kennt börnunum okkar þetta. Við mokum hlutum í börnin okkar, þau eru orðin vön.

Ég get ekki talið skiptin sem að mig hefur langað til að öskra: Vertu ánægður með það sem að þú hefur og færð!!

Mig langar til að finna fyrir þakklæti, þegar að ég kem úr bíó ferð með ungana. En ekki fá að heyra: Getum við núna farið að fá okkur ís?

Ég er kannski pínu ósanngjörn gagnvart ungunum mínum, því að þeir hafa sýnt ótrúlegan skilning á okkar fjárhag undanfarið. Hér er sko ekki vaðið í peningum, við höfum haft það gott, kannski pínu betra en gott meira að segja. En núna eru breyttir tímar og með því heyri ég meira þakklæti en ég hef gert lengi. Hér eru nokkur dæmi:

ElstiUnginn: Nei við skulum ekki panta pizzu þótt að það sé pizzu og bíómynda kvöld, það er svo dýrt....

MiðUnginn: Þakkaði mér þristvarsinnum mjög innilega fyrir að koma  með kökur í skólann á afmælinu hans. Hann hefur einnig ákveðið að hann vill ekki halda stórt afmælispartý, vill bara bjóða sýnum bestu vinum upp á góðan dag á skemmtilegum stað.

YngstiUnginn: Var að telja upp hvað hann langaði í í afmælisgjöf, þriðji hluturinn á listanum var matur. "Matur" sagði ég " Ertu að tala um hvað þig langar til að hafa í kvöldmatinn á afmælisdaginn þinn?"

Nei, mamma, bara matur

Villtu í alvörunni mat í afmælisgjöf?!? Ég var ekkert smá hissa á þessu öllu.

Nei.... Mig langar bara til að hjálpa til......

Þarna gerðist tvennt hjá mér, ég var einstaklega ánægð yfir því að unginn minn virtist ekki taka öllu sem að við eigum sem sjálfsögðum hlut. Og ég varð svo reið yfir því að hann skildi finna fyrir þörf á að biðja um mat fyrir okkur í afmælisgjöf.

Ég vill ekki að ungarnir mínir hafi peningaáhyggjur, en ég vill samt ekki að þeir taka því sem að þeir eiga og fá sem sjálfsögðum hlut. Þarna á milli er fín lína eins og hún systir mín benti mér réttilega á og ég hef án efa farið yfir þessa línu nokkrum sinnum. Ég er ekki fullkomin en ég geri mitt besta og ég verð bara að trúa og vona að það sé nóg.

Það er víst, að það sem er að gerast í heiminum núna mun kenna okkur öllum að meta betur það sem að við höfum. Eða ég vona það alla veganna.


mbl.is Eyjamenn sparka í kreppuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætli ég noti þá ekki bara tækifærið..

..og kynni ungana fyrir sápunni!!

Annars er þetta bara gott mál, því ef að þú veist það ekki núna þegar þá er komin tími á að þú vitir að þú átt að þvo þér um hendurnar. Auðvitað eiga allir að þvo sér um hendurnar. Já, ég segi auðvitað af því að við sápuhandþvottinn er ég uppalin. En það er víst nokkuð ljóst að ekki er svo með alla.

Ég fæ td klígju þegar að ég les inni á salernum á veitingastöðum "Starfsfólk á að þvo sér um hendurnar áður en að það snýr aftur til vinnu".

DÖÖ.... þú varst á klósetinu, þarf að segja þér að þú þurfir að þvo þér um hendurnar?!?


mbl.is Fyrsti alþjóðlegi handþvottadagurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Knús til þín

"Knúsvikan mikla" Júlli mælir með knúsi, ég er sammála honum.

Ég sendi "Kærleiks knús" til þín

Dísa Dóra bennti á þessa viku á sínu bloggi


Kannski væri hægt að nota þetta höfuð til að leysa vanda Íslendinga

Þau höfuð sem notuð hafa verið upp á síðkastið til að vinna í vandamálum þjóðarinnar hafa ekki staðið fyrir sínu. Kannski að hið þurrkaða höfuð sem sat á herðum ættarhöfðingjans og töframanns Shuar-indíána, geti leyst vandann.

Ég mæli með að allir sem vettlingi geta valdið fari að höfðinu og biðji um aðstoð. En ekki samt biðja um að það leggi sig í bleyti því að það gæti eyðilagt þetta forna, þurra höfuð Tounge Já og ekki búast við svörum einn tveir og þrír, ég hef heyrt að hann sé nokkuð þurr á manninn Pouty

En svona án als gríns "Öllu gríni fylgir einhver alvara", og óhætt að segja að við þurfum að leita allra ráða til að rétta krónuna af.


mbl.is Þurrkað höfuð í Kópavogi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úff

Þetta barn þarf hjálp!

Þó að ekki sé hægt að kæra barnið vegna aldurs þá hlýtur að vera hægt að skilda foreldrana til að sækja sér aðstoðar fyrir drenginn. Ég held að það sé nokkuð ljóst að ef að barnið gerir svona nokkuð 7 ára gamall þá á hann eftir að gera eitthvað verra þegar að hann verður eldri nema að hann fái hjálp.


mbl.is 7 ára drengur olli uppnámi í dýragarði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og þar fór það

Ekki verður þetta til að hjálpa til.

Nú er bara að leggjast á bæn og vona að einhverjum detti eitthvað snilldarlegt í hug til að rétta krónuna af. Ef að mig misminnir ekki þá eru um 15 ár síðan að krónan var svona lág síðast.


mbl.is Gjaldeyriskreppa á Íslandi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Party on....

SporðdrekiSporðdreki: Undanfarið hefurðu horft inn á við, en nú ætlarðu að líta út. Haltu partí fyrir fjölskyldu og vini. Góður matur, gott vín og svo þú - hinn fullkomni gestgjafi!

Ég veit nú ekki hvort að ég sé hinn fullkomni gestgjafi, en...... Ég er að fá fjölskyldu meðlimi sem eru einnig vinir mínir, í heimsókn á föstudaginn!!!

W00tWizardGrin VÓV! Hvað mig hlakkar til W00tGrinWizard


Falleg....

falleg ertu Kópavogskirkja InLove


mbl.is Kópavogskirkja lýst bleik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svei mér þá...

.. nú er ég svo aldeilis hissa!! W00t

Eða þannig!


mbl.is Fiskneysla og brjóstagjöf eykur þroska ungbarna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband