Færsluflokkur: Bloggar

Fallega gert

Mér finnst íshokkíliðið OIK sýna hlýhug til Íslendinga með þessu, og hver veit kannski fá þeir góðan stuðning frá þeim Íslendingum sem mæta. Við höfum heyrt sögur þar sem að Íslendingar hafa lent í leiðindum undanfarnar viku og það fyrir það eitt að vera Íslendingar. Ég er ekkert par hrifinn af íshokkí, hef bara farið á einn leik á minni ævi. En ef að mér yrði boðið á leik þá myndi ég örugglega fara. Ég er nokkuð viss um að eitt stk íshokkíleikur gæti komið blóðinu til að renna og adrenalíninu til að spýtast út í líkamann. Það er bæði gott og hollt að lyfta sér upp þegar að illa stendur á.  

Svo að ég segi bara þrátt fyrir að ég sé allt of langt í burtu til að þiggja þessa gjöf "Takk fyrir mig, OIK"


mbl.is Íslendingar fá frítt á leik í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brosi í gegnum tárin

Ó VÁ! Hvað það er gott að lesa góðar fréttir svona einu sinni. Ekki að það sé neitt gott við að húsið hafi brunnið, nei als ekki. En það er yndislegt að sjá tryggðina í hundinum. Þrátt fyrir að hafa orðið fyrir reykeitrun sést í enda myndbrotsins þar sem að hann er í óðaönn að þrífa einn kettlinginn. Bara fallegt og bara gott. Bara tár og bros.


mbl.is Gætti nýfæddra kettlinga uns hjálpin barst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nei takk

Það er náttúrulega alveg út í hött að fá Breta til Íslands til að "passa" Íslendinga. Kannski það ætti að biðja alla landsmenn um að taka niður um sig buxurnar og bjóða á sér aftur endann. Það er út í hött að þeir komi hingað.

Svo svona þar sem að íslendingar eru ekkert allt of hrifnir af Bretum núna þá held ég að það sé skinsamlegast að vera ekkert að flytja þá inn í nafni þjóðar þeirra. Auðvitað er ekkert að bresku fólki, svo ekki taka því sem að ég sé að setja út á almenninginn. Og þeir sem að fljúga þessum vélum eru auðvitað ekki þeir sem að komu illa fram við okkur. En eins og sást í fréttum þá hafa Íslendingar lennt í vandræðum erlendis og ekki er þar fólk á ferð sem hafði eitthvað með peninga mál bankanna að gera. Við mannfólkið látum stundum skap okkar og hræðslu bitna á þeim sem hafa ekkert með málið að gera.

En ég segi nú samt: "Nei takk ekki, ekki núna, fljúgið bara eitthvað annað"


mbl.is Móðgun ef Bretarnir koma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það þarf að biðja fyrir manninum

Ég verð að taka undir orð Obama, ég hef ekki heyrt neitt koma frá McCain í langan tíma nema þá eitthvað neikvætt um Obama. Ég tjáði mig smá um þetta hér og læt það duga í bili.

Fólk talar um að það séu líkur á að reint verði að ráða Obama af dögum ef/þegar að hann verði kosin forseti Bandaríkjanna. Og hef ég jáað það, mér finnst ekkert ólíklegt að öfgahópar eða bara einn klikkhaus reyni það. Svo þegar að ég var að horfa á Obama tala í síðustu kappræðum þá fékk ég svona rosalega sterka tilfinningu um að Obama yrði ráðin af dögum. Svo ég segi: Biðjum fyrir manninum.

Þið sem ekki biðjið getið bara hugsað jákvætt til hans Wink

Hér er frábært myndband, sýnir hvað fólk er búið að fá mikið nóg af núverandi stjórn Bandaríkjanna.

Ég stal myndbandinu af síðu Árna S.

Þið ættuð líka að kíkja á þetta myndband frá Ron Howard. Það sýnir að fólk vill leggja sitt af mörkum til að losa Bandaríkin undan stjórn repúblikana.

Ég stal því af síðu Halldórs S.


mbl.is Baráttan neikvæð og ódrengileg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenskur Rannsóknarlögreglumaður - Fox news - Ég fékk þennan tölvupóst...

..og ákvað að googla hann. Hér eru tvær, 1, 2, síður sem að ég fann.

Málið er að í póstinum er linkur á síðu hjá Fox news, þar er frétt um þetta efni "strawberry quick", svo að það er kannski ekkert skrítið þótt að fólk verði hrætt. Við nefnilega trúum oftast fréttunum, eða við viljum geta trúað frétta flutningnum.

Hér er dæmi: As for meth, anyone who’s seen a meth addict, with their scabbed skin and rotting teeth, knows what a con “Strawberry Quick” is.

Ég hef það fyrir vana að goggla allan viðvörunar póst sem að ég fæ.

En málið er að þessi póstur sem gengur um á Íslandi byrjar á fullyrðingu frá Íslenskum rannsóknarlögreglumanni. Hann gefur upp fullt nafn, atvinnu, síma, vefpóstfang og flr. Ég googlaði nafnið hans og hann er til. Hvort að einhver er að nota nafnið hans og upplýsingar án leyfis veit ég ekki. En ég skil vel að foreldrar verði skelkaðir þegar að þeir fá svona tölvupóst. Ég varð það.


mbl.is Foreldrar varaðir við nýju fíkniefni - Gabb sem gengur á netinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gömul skilgreining endurhönnuð

SÓSÍALISMI
Þú átt 2 kýr.
Þú gefur nágranna þínum aðra þeirra.

KOMMÚNISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar og gefur þér mjólk.

FASISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar og selur þér mjólk.

NASISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar...og skýtur þig svo.

SKRIFRÆÐI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar, skýtur aðra þeirra, mjólkar hina og hellir svo allri mjólkinni.

HEFÐBUNDINN KAPITALISMI
Þú átt 2 kýr.
Þú selur aðra þeirra og kaupir naut. Þú stofnar kúabú og hagnast vel. Þú hagnast vel, selur kúabúið og sest í helgan stein

SÚRREALISMI
Þú átt 2 gíraffa.
Ríkið krefst þess að þú farir í harmonikkunám.

BANDARÍSKA FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú selur aðra þeirra og þvingar hina til að gefa af sér mjólk á við fjórar kýr. Þú ræður svo sérfræðing til að komast að því hvers vegna hún datt niður dauð.

ÁHÆTTUFJÁRFESTINGAR  - Íslendingar
Þú átt 2 kýr.
Þú selur 3 þeirra til fyrirtækis á opnum markaði með veði í gervifyrirtæki mágs þíns, gengur svo frá yfirtöku með vísan í skráningu á markaði þannig að þú færð allar 4 kýrnar tilbaka og skattaívilnanir vegna einnar til viðbótar. Afurðarétturinn af kúnum 6 er færður yfir á fyrirtæki í Karíbahafinu, en leynilegur meirihlutaeigandi þess selur þér aftur réttinn að öllum 7 kúnum. Samkvæmt ársskýrslu á fyrirtækið nú 8 kýr, með eigendarétti að einni til viðbótar. Þú selur eina kú til þess að þóknast ónefndum stjórnmálamanni og átt þá níu kýr. Rétturinn að nautinu er seldur almenningi í hlutafjárútboði.

FRANSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú ferð í verkfall, skipuleggur mótmæli og tefur umferð...vegna þess að þú vilt eiga þrjár kýr.

JAPANSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú endurhannar þær þannig að þær verða tíu sinnum minni, en framleiða tuttugu sinnum meiri mjólk. Þú markaðssetur svo nýja teiknimyndahetju, „Kúmann", sem nær miklum vinsældum um allan heim.

ÞÝSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú endurhannar þær þannig að þær lifa í 100 ár, éta einu sinni í mánuði og mjólka sig sjálfar.


ÍTALSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú veist ekki hvar þær eru niðurkomnar. Þú ákveður að fá þér að borða.

RÚSSNESKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú telur þær og kemst að því að þú átt 5 kýr.
Þú telur þær aftur og kemst að því að þú átt 42 kýr.
Þú telur þær enn og aftur og kemst að því að þú átt 2 kýr.
Þú hættir að telja og opnar aðra vodkaflösku.

SVISSNESKT FYRIRTÆKI
Þú átt 5000 kýr. Engin þeirra tilheyrir þér í raun.
Þú rukkar eigendurna fyrir geymsluna.

KÍNVERSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú ræður 300 manns til að mjólka þær. Þú segir atvinnuleysi í lágmarki og blómstrandi landbúnað. Þú handtekur fréttmanninn sem sagði frá stöðunni eins og hún er í raun og veru.

INDVERSKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.
Þú tilbiður þær.

BRESKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.
Báðar eru með gin-og klaufaveiki

ÁSTRALSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Bissnessinn gengur vel.
Þú lokar skrifstofunni og færð þér nokkra kalda til að halda upp á það.

NÝ-SJÁLENSKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.
Sú til vinstri er asskoti löguleg.


ÍRASKT FYRIRTÆKI
Allir virðast eiga fjölda kúa.
Þú segir öllum að þú eigir enga.
Enginn trúir þér svo þeir sprengja þig í tætlur og ráðast inn í landið.
Þú átt enn engar kýr, en þú býrð þó amk í lýðræðisríki núna...




mbl.is Landsbankinn af hryðjuverkalista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég stunda ekki hryðjuverk Hr. Brown - Undirskriftalysti

Brot af síðunni:

Íslendingar eru ekki hryðjuverkamenn

Hjálpið okkur að stöðva misbeitingu hryðjuverkalaga

Gordon Brown beitti hryðjuverkavarnarlögum gegn Íslendingum á óréttmætan hátt til að þjóna pólitískum skammtímahagsmunum sínum. Þetta hefur breytt grafalvarlegri stöðu í efnahagshrun, sem snertir fjölskyldur á Íslandi og á Bretlandseyjum. Hjálpið okkur að fyrirbyggja frekari skaða með því að taka þátt í þessari undirskriftasöfnun núna.

 

Við getum látið í okkur heyra á svo margan hátt. Farið nú á þessa síðu og skráið ykkur!!


Er þetta rétti tíminn?

 

Að mínu mati er tímasetningin ekki alveg sú besta, fyrir utan að engin er að fara að byggja á næstunni þá er ríkið að berjast við að halda landinu á floti.

 


mbl.is Í mál við Alcan, ríkið og Hafnarfjarðarbæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú gleðst ég :o) Powell kann að koma orðum að því

Það er alveg frábært að Colin Powell hafa tekið þessa ákvörðun, hans stuðningur er mjög jákvæður fyrir Barack Obama og reyndar alla.

Colin Powell kemur því vel frá sér sem að ég fann fyrir þegar að ég horfði á síðustu kappræður þeirra Obama og McCain. Hann sagði reyndar ekki frá því að hann hafi fengið klígju yfir vælinu í McCain eins og ég gerði. En hann lýsti vel hvað Obama tók miklu betur á málunum. Obama hélt stillingu sinni allan tíman, var aldrei með dónaskap. En það er ekki hægt að segja það sama um McCain, vælandi benti hann fingri á Obama "Hann er vondur við mig" á meðan að auglýsingar hans segja Obama hryðjuverkamann. Svo vogar McCain sér að biðjar um afsökunarbeiðni frá Obama. Þessi fræga og fleyga setning "Fólk er fífl" passar vel við hér að mínu mati.

Glottandi eða hálf brosandi beit McCain svo fast á jaxlana að það fer ekki framhjá neinum. Það skýrir kannski hvað hann er kjálka mikill, maðurinn á erfitt með að hemja sig.

Obama var hinsvegar rólegur og yfirvegaður í fasi allan tíman, aldrei sá maður að hann væri reiður þrátt fyrir ásakanir McCains.

Ommi setti vitalið inn á síðuna sína og þegar að ég horfði á það fann ég fyrir svo mikilli gleði að ég ákvað að setja það hér inn. Þig getið þá séð það ef að þið eruð þá ekki búin að því nú þegar. Músin ég táraðist yfir þessari yfirlýsingu og hvernig Colin kom henni frá sér.

Þetta er svona "Up your´s republican´s" Devil hihihihi... HA!


mbl.is Powell styður Obama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NEYTENDUR OG FJÖLMIÐLAR ATHUGIÐ!

Ég fékk þetta lánað af vef "Félag Íslenskra flugmanna" eftir ábendingu frá Nonna, nokkrum á vefnum hennar Hólmdísar

NEYTENDUR OG FJÖLMIÐLAR ATHUGIÐ!

Í tilefni atburða undanfarna daga telur FÍA rétta að það komi skýrt fram að til að styrkja íslenskt atvinnulíf sé nauðsynlegt að velja íslenskt, þar á meðal að fljúga með íslenskum flugfélögum frekar en erlendum samkeppnisaðilum.

Það skal því áréttast að ef keyptur er farmiði, eins og með Iceland Express, er í raun verið að kaupa miða með Breska flugfélaginu Astreus, þar sem flogið er á þeirra flugvélum með breskum flugmönnum og á bresku flugnúmeri. Það flug fellur í einu og öllu undir reglur "vina" okkar breta sem hafa staðið svo vel við bakið á okkur í hremmingum undanfarinna daga eins og raun ber vitni.

VELJUM ÍSLENSKT!

Það er svolítið áhugavert að lesa þetta á þeim tíma sem að Ísland vantar peninga og við erum reið út í það hvernig Bretland er að koma fram við okkur sem þjóð.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband