Færsluflokkur: Bloggar

Segjum nei við ofbeldi gegn konum!

Fékk þetta lánað af blogginu hennar Dísu Dóru sem fékk þetta lánað af bloggi  Hörpu og hvet svo sannarlega alla til að skrifa undir.

"fimmtudagur, 14 ágúst 2008


Ríkisstjórn Íslands segir NEI við ofbeldi gegn konum. - Nýtt átak á vegum
UNIFEM á Íslandi hafið 


SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRIFA UNDIR!  


Undirskriftaátakið Segjum NEI við ofbeldi gegn konum var opnað á www.unifem.is  í dag
Utanríkisráðherra, samgönguráðherra og heilbrigðisráðherra undirrituðu áskorunina fyrir hönd ríkisstjórnarinnar að viðstöddum fjölmiðlum .Átakið er hvatning til ríkisstjórna heims að grípa til aðgerða til að binda endi á ofbeldi gegn konum.

Allir Íslendingar eru hvattir til þess að skrifa undir

„Ef eitthvað skiptir máli i samfélögum heims þá er það að auka réttindi og
bæta stöðu kvenna, ekki bara fyrir konur heldur samfélagið allt. Við skulum
ekki gleyma því að konur eru ekki bara fórnarlömb heldur einnig gerendur í
eigin lífi.  Konur um allan heim taka málin í sínar hendur og þess vegna er
svona átak mikilvægt því að það styður þær í því," sagði Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir utanríkisráðherra á fjölmiðlafundi hjá UNIFEM á Íslandi í morgun
um leið og hún hvatti alla ráðherra, þingmenn og almenning til að leggja
átakinu lið.

Átakið

Í nóvember síðastliðnum fóru höfuðstöðvar UNIFEM af stað með átakið Say NO
to Violence against Women í samstarfi við velgjörðarsendiherra sinn Nicole
Kidman. Það átak mun standa yfir í eitt ár. Landsnefnd UNIFEM á Íslandi
opnaði í dag sérstaka íslenska heimasíðu tileinkaða átakinu til þess að
hvetja Íslendinga til þess að ljá málefninu lið og skrifa nafn sitt undir
áskorun til ríkisstjórna heims.

„Ofbeldi gegn konum er málefni sem getur ekki beðið. Að minnsta kosti ein
af hverjum þremur konum er barin, þvinguð til kynlífs eða misnotuð á annan
hátt einhvern tímann á lífsleiðinni. Fimmta hver kona verður fórnarlamb
nauðgunar eða tilraunar til nauðgunar. Mansal, kynferðisleg áreitni,
limlesting á kynfærum kvenna, morð vegna heimanmunds, heiðursmorð og
útburður stúlkubarna eru hluti af sama vandamáli, þetta er allt ofbeldi gegn
konum. Ekkert land, engin menning, engin kona ung eða gömul, er ónæm fyrir
þessari plágu. Alltof oft er komist upp með þessa glæpi án þess að refsað sé
fyrir og ofbeldismennirnir ganga lausir. " sagði Regína Bjarnadóttir
stjórnarformaður UNIFEM á Íslandi á blaðamannafundi í dag þegar hún vakti
máls á mikilvægi þess að ríkisstjórnir heims gripu til aðgerða gegn
kynbundnu ofbeldi.

Markmið átaksins er að fá sem flesta Íslendinga til þess að skrifa undir
áskorunina Segjum NEI við ofbeldi gegn konum á heimasíðu UNIFEM á Íslandi -
www.unifem.is <http://www.unifem.is/> . Átakið mun standa yfir í 12 vikur og
lýkur þann 6. nóvember næstkomandi. Þá munu undirskriftirnar verða sendar
formlega til höfuðstöðva UNIFEM í New York, en heimsátakinu lýkur þann 25.
nóvember á baráttudegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi.

Því fleiri undirskriftir - því sterkari málstaður

Þetta átak UNIFEM - Segjum NEI við ofbeldi gegn konum - hvetur fólk til þess
að setja nafn sitt á blað sem yfirlýsingu um stuðning almennings og ákall
til ráðafólks á heimsvísu um að gera það að forgangsverkefni að binda endi á
ofbeldi gegn konum. Því fleiri nöfnum sem við söfnum því sterkari er
málstaðurinn.

Það hefur sýnt sig að sterkur pólitískur vilji til þess að binda endi á
ofbeldi gegn konum er eitt sterkasta vopnið í baráttunni. Í flestum ríkjum
heims gæti bætt lagasetning, framkvæmd laga, eftirfylgni og réttlátara
dómskerfi minnkað ofbeldi gegn konum til muna. Víðtækur stuðningur við
átakið mun skila aukinni vitund um mikilvægi þess að berjast gegn ofbeldi
gegn konum, hvað ríkisstjórnir heims geta gert til þess að leggja sitt af
mörkum og aukinni vitund um að til séu raunverulegar lausnir sem munu skila
sér í minnkandi ofbeldi gegn konum.

 Frá norðri til suðurs "

 


Hver er sinnar gæfu smiður

Ég hef komist að því að ég er ekki góður smiður. 

Við erum þá komin heim eftir viku hjá tengdó, það var gott að komast í burtu. Ég er heppin að eiga yndislega tengda fjölskyldu, ég held að margir eigi ekki einu sinni jafn góða fjölskyldu og mín tengdafjölskylda er. Við ungarnir áttum góðar stundir, þarna er svo margt fyrir þá að bralla. Ég sagði við einn bloggvin minn áður en að ég fór að ég ætlaði að vera svo dugleg að nota aðstæðurnar hjá tengdó. Vera dugleg og rækta huga og líkama, ég gerði það ekki og ég er vonsvikin út í sjálfa mig fyrir það.

Ég tók stóra ákvörðun á leiðinni þangað, sem að í raun litaði dvöl mína þarna þyngri litum en ef að ég hefði ekki gert það. En nú verð ég að takast á við það sem fylgir henni. Í gærkveldi var í fyrsta sinn sem að þessi hugsun kom upp í hugann síðan að ég kom hingað "Mig langar heim, ég vil bara komast heim". En ég get það ekki, ekki enn. Ég veit ekki hvernig ég á að takast á við mín persónulegu vandamál og hvað þá önnur vandamál sem hafa komið upp. Ég veit að mín vandamál eru ekki stór miðað við vandámál margra í heiminum, en fyrir mér eru þau næstum því óyfirstíganleg. Ég hef engar lausnir lengur. Ég á mér drauma en þeir eru svo langt í burtu að ég sé ekki einu sinni hilla fyrir þeim.

 

 


Þetta er það sem að ég er búin að vera að segja

Rússar eru búnir að vera að ögra öðrum löndum núna um nokkuð skeið. Og því skrifaði ég þessi blogg:

Ég fæ hroll

Mér stendur ekki á sama

Vó... 

Ef að ég gat getið mér til um að Rússar væru með eitthvað plan í gangi þá ætti þetta ekki að hafa komið mönnum/konum sem sjá um öryggi landa sinna á óvart.


mbl.is Saakashvílí hyggst setja herlög í Georgíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar að hræðslan við ofbeldi er endurvakinn

Við sem höfum búið við ofbeldi og komið okkur út úr því sambandi vitum aldrei hvar eða hvenær við finnum fyrir hræðslunni aftur. Við vitum oft ekki einu sinni hvað það er sem mun láta líkama okkar og sál kveljast aftur út af því sem liðið er.

En í dag fékk ég sprautu hræðslunnar beint í æð, það eru liðin c. 18 ár síðan að ég kom mér frá þeim manni sem að beitti mig bæði andlegu og líkamlegu ofbeldi. Ég er búin að vera í föstu sambandi við mann í rúm 16 og hefur sá maður aldrei lagt á mig hendur og ég hélt að ég væri búin að lifa það lengi án ofbeldis að ég myndi aldrei aftur finna fyrir þessari hræðslu sem heltekur mann þegar að maður bíður eftir því að vera barinn.

Ég var sem sagt farþegi í bíl í dag, ökumaðurinn var mjög stressaður og mér reiður, hann keyrði eins og hálfviti til að ná á ákvörðunar stað á réttum tíma. Ég fór að gráta inn í mér og ég fann fyrir gamalli tilfinningu, hræðslan sem að ég fann var ekki vegna þess sem var að gerast heldur vegna hluta sem höfðu gerst fyrir mörgum árum.

Hræðslan stigmagnaðist hjá mér og yfir tók mig alla. Ég gat ekki hætt að gráta, ég hélt svo fast í bílhurðina að ég átti erfitt með að losa höndina.

Þegar að við komum á ákvörðunarstað varð ég að fara inn með manneskjunni og bíða í biðstofu fullri af fólki. Ég gat ekki tekið niður sólgleraugun því tárin héldu áfram að streyma niður kinnar mínar og augun voru rauð og þrútinn.

Ökumaðurinn þurfti á mér að halda en ég hafði ekkert að gefa, líkami minn var alveg dofinn og enn stífur af gamalli hræðslu. Á endanum fór ég heim og sagðist myndi koma aftur þegar að bílstjórinn væri búinn og þyrfti að komast heim.

Ég fór heim, fékk mér að borða og fór í sturtu, ég vildi reina að þvo af mér hræðsluna.

Eftir að ég hafði náð í bílstjórann og keyrt hann heim, var ég alveg búin á því. Ég fór heim tók inn verkjalyf þar sem að öll spennan hafði kallað á mikinn höfuðverk. Svo lagði ég mig í rúman klukkutíma.

Þegar að ég vaknaði leið mér aðeins betur en doðinn, hræðslan og spennan voru enn ekki alveg farinn.

Núna finn ég að ég er að styrkjast aftur en veit þó að það þarf ekki mikið til að endurvekja þann draug sem heltók mig í dag.

Þegar að ég las núna yfir það sem að ég hafði skrifað hugsaði ég: Skrítið, ég hélt að ég væri sterkari.

En málið er sjálfsagt bara það, að það skiptir ekki máli hversu sterk við erum, hræðslan getur yfirtekið okkur öll.

 


Frábært alveg frábært!

Slatti af húmor en samt nægilega mikið af snyrtilegum skotum. Mér finnst þetta frábært hjá henni!


mbl.is París Hilton svarar með eigin auglýsingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smá útskýring frá mér

Ég hef ekki verið að segja mikið um líf mitt undanfarið. En hér er smá sem að kannski útskýrir málið pínu: 

Er doðinn umlíkur líkama og sál

Og hamingjan virðist Sporðdrekanum hál.

Er börnin búa við þungbúna móðir.

Að ég bið þig um aðstoð,

Guð vertu svo góður. 

.

Hvar er sú kona sem eitt sinn ég þekkti.

Þegar að stutt var í hlátur og púka glettni.

Ég bið þig um aðstoð,

Guð vertu svo góður.

Ég fór í ræktina tvisvar sinnum í dag. Í fyrra skiptið til að koma mér út úr rúminu og í seinna skiptið til að halda mér frá rúminu. Svo ef að mér fer ekki að líða betur andlega þá verður líkaminn alla vega voða flottur.

E.S. Ég veit ekki af hverju en ég get ekki minkað eina línuna, sama hvað ég reyni hún vill ekki vera í sömu stærð og hinar. Kannski er það vegna þess hversu hátt ég bið.

 

SporðdrekiSporðdreki: Rífðu upp stemninguna í kringum þig, líka hvað varðar líkama þinn, föt, heimili og bíl. Ef þér líkar efnisheimurinn þinn, ertu rólegur hið innra.

Já er það ekki! Nú er stjörnuspáin farin að segja mér að taka til!


Að takast á við sorgina - Cute

Ástarsorg er missir, að missa einhvern sem að við elskum hvort sem að það er vegna höfnunar eða vegna andláts getur verið mikil sorg. Sorg getur tekið mikið á, þá bæði andlega og líkamlega. Þetta veit ég af eigin raun og ég vona að þið sem að eigið vini, kunningja eða ástvini sem lenda í ástarsorg, gerið ykkur grein fyrir þessu.

Mér finnst þetta því stórgóð hugmynd hjá þessum Austurríkjamönnum/konum, ég vona að ráðgjöfin þeirra sé jafn góð og hugmyndin.

 

SporðdrekiSporðdreki: Þú ert vitrari en aldur þinn segir til um, en það þýðir ekki að þú viljir nýta þér viskuna. Þú ert mjög unglegur á marga vegu og fólki finnst það heillandi.

Jú jú það getur verið voða gaman þegar að fólk heldur að maður sé yngri en að maður er. En ég er nú samt stundum að spá í það hvort að kona á mínum aldri (komin mjög nálægt 40) eigi að vera kölluð "Sweetie", "Cute" og svipuðum nöfnum og það meira að segja af ókunnugum Woundering

Kannski verð ég alltaf nær því að vera eins og unglingur en eins og hinar mömmurnar. Því heldur elsti-Unginn minn alla veganna fram Wink


mbl.is Aðstoð í ástarsorg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég tel mig vita ástæðuna fyrir þessu

Það er nefnilega þannig að þegar að maður er að tala við makann sinn þá segir hann oft "nei það er ekki það sem gerðist", "Þú sagðist ætla að gera....", "þegar að ég sagðist ætla að fara til ..... þá sagðir þú".

Þegar að makinn segir manni að maður hafi sagt eða gert eitthvað annað en mann minnir sjálfan að maður hafi gert, nú hvað gerist þá? Jú, maður fer að hugsa!

Ég get ekki sagt ykkur hversu oft þessar setningar hafa farið á milli mín og Ljónsins:

 "Þú sagðir mér það aldrei", "ég hef aldrei sagt það" "þú sagðir" og "Ég sagði það ekki".

Nú þetta fær mann til að brjóta heilann fram og til baka, "sagði ég...", "sagði hann..."og svo framvegis.

Þetta tel ég sem sagt vera ástæðuna fyrir að fólk með maka hafi minni líkur á að fá Alzheimer.

Þetta segir mér líka að pabbi minn og mamma séu alltaf sammála eða að pabbi nenni ekki að þræta við mömmu Errm. Mamma segist nefnilega vera með hálfZheimer en pabbi er bara nokkuð góður Undecided


mbl.is Einstæðum hætt við Alzheimer
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já var það ekki!

Menn til forna voru ekkert annað en klúrir dónar! Ég held að mér hefði bara þótt gaman að þeim W00t

Það getur verið að tæknin breytist hratt en við mannfólkið erum víst ekkert voða mikið að breytast. Kúkur, prump, piss, píka og tippi, þetta er víst alltaf jafn fyndið, tala nú ekki um ef að hljóð fylgja með Wink


mbl.is 4000 ára gamall brandari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mynd af vatni á Mars

Ég varð nú hálf hissa þegar að ég las þetta: En þetta er í fyrsta skipti, sem vatn hefur verið snert og bragðað."

Bragðað! W00t Hvað er fólk að drekka vatn sem að það finnur á Mars?!? Maður veit ekkert hvað er í þessu! Sick En svo sá ég myndina og skildi málið betur, auðvitað þarf að drekka vatnið áður en að maður borðað Marsið. Þið vitið svo að líkaminn losi sig fyrr við sykurinn...... Wink 


mbl.is Vatn finnst á Mars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband