Færsluflokkur: Bloggar
26.8.2008 | 00:09
Íþróttasúlan hennar Hólmdísar
Hún Hólmdís er með þessa frábæru hugmynd um að reisa steinsúlu í Laugardalnum fyrir íþróttafólk. Mér persónulega finnst þetta svo frábær hugmynd að mér þætti synd ef að ekki yrði af þessu. Spurningin er bara: Hvernig verður hugmyndinni hennar Hólmdísar komið á framfæri?
Hér er C/P af síðunni hennar:
REISUM STEINSÚLU Í LAUGARDALNUM MEÐ NÖFNUM AFREKSMANNA Í ÍÞRÓTTUM.
Við eigum virkilega að halda á lofti nöfnum afreksmanna í íþróttum. Hvað væri glæsilegra eða betur við hæfi en há steinsúla þar sem nöfn afreksmanna í íþróttum væri greypt í stein. Hafa súluna svo háa að hún sæist víða að úr borginni. Þetta fólk eru bestu fyrirmyndir sem börn okkar geta átt. Gaman og verðugt að stefna að því að fá nafn sitt greypt í súluna. Hægt að hafa ljós á toppnum sem aðeins logaði þegar íþróttaafrek hefur verið unnið. Hvað finnst ykkur? Við erum öll í silfurvímu......og getum minnst þess í framtíðinni þegar við lesum á súluna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
25.8.2008 | 18:27
Þetta lýst mér vel á!
Kannski að fólk fari aðeins að hugsa, tja eða ekki.
Það er náttúrulega bara tilraun til morðs að reyna að smita einhvern af HIV veirunni. Auðvitað getur fólk lifað árum samann án einkenna, en ekki allir. Mér finnst því gott mál að þarna skuli verið dæmt fórnarlömbunum í hag.
Ég get ekki ímyndað mér hversu yfir sig fegna hinar konurnar hljóta að vera sem ekki smituðust.
![]() |
10 ára fangelsi fyrir að smita konur af HIV |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
25.8.2008 | 14:45
:o)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
24.8.2008 | 13:44
Við erum ekki bara ánægð Guðmundur...
.. Við erum að rifna af stolti yfir því að þið séuð okkar menn!
Ég vona að liði "okkar" geri sér grein fyrir því hversu glöð og stolt við erum af þeim!
Ég verð að benda á hversu falleg mér finnst myndin og það sem textinn segir sem fylgir þessari frétt. Það hlýtur að hafa verið rosalegt spennufall hjá strákunum eftir leikinn og þótt að hann Fúsi "okkar" sé stór og stæðilegur þá er hann mjúkur sem mús, dúllinn
![]() |
Töpuðum ekki gullinu heldur unnum silfur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.8.2008 | 09:28
Alveg ótrúlegir!! :o)
Handbolta strákarnir "okkar" mega sko vera stoltir í dag! Að fá silfur verðlaun á Ólympíuleikunum er bara stórkostlegt!
Ég hrópa því þrefalt húrra fyrir þeim:
((( Húrra )))
((( Húrra )))
((( Húrra )))
Strákarnir hafa lagt allt sitt og meira til í leikina á Ólympíuleikunum, fyrir það megum við þakka þeim. Takk fyrir mig strákar!!
Strákarnir eiga skilið hlýjar, kröftugar og gleðilegar mótökur þegar að þeir koma heim
![]() |
Ísland í 2. sæti á ÓL |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.8.2008 | 01:36
Sjaldan eða aldrei fundist ég svona glötuð mamma! )o;
Ljónið og ungarnir voru að fara í fimm daga ferðalag til annars lands. Öllum er búið að hlakka mikið til og ekki síst mér að fá þennan tíma til að rækta sjálfið.
Það þurfti að vakna um miðja nótt fyrir ferðina allir búnir að pakka og spennan gífurleg. Ég vaknaði án vekjaraklukkunnar með vonda tilfinningu í maganum "vegabréfin". Æ slakaðu á kona, sagði ég við sjálfa mig, þú veist hvar þau eru svo lúrðu nú þangað til klukkan hringir. En ég fékk ekki frið fyrir þessari vondu, vondu tilfinningu að eitthvað væri ekki í lagi. Ég skopaðist því niður til að ná í vegabréfin, jú jú þarna voru þau allt í góðu núna.?
En samt var eitthvað að, hvaða óróleiki er þetta í þér kona? Spurði ég sjálfa mig. Skoðaðu þá bara dagsetningarnar þetta er allt í góðu.
NEI!!!!
Ó nei, ó nei, ó nei, ó nei, hvað hef ég gert?!?
Vegabréf yngsta ungans er útrunnið!!!
Hálf skælandi og stjörf færi ég Ljóninu fréttirnar.
NEI!! Það getur ekki verið! Ó Guð nei! Ertu alveg viss?!? Hann horfði á mig með örvæntingu og von í augum.
Skoðaðu bara sjálfur. Það skipti ekki máli hversu oft við skoðuðum dagsetninguna hún breytist ekki. En hvað með Íslenska vegabréfið hans? Sagði Ljónið. Er það OK?! Ég gat varla kreist orðið "nei" út fyrir varir mínar.
Það varð að koma þeim sem voru að fara út á flugvöll svo að ungarnir voru vaktir og þeim sagðar fréttirnar. Unginn litli tók þessu furðulega vel, ég var hálf hissa. En svo sá hann pabba sinn og fór að hágráta. Þarna stóð Ljónið með ungann í fanginu og þeir grétu báðir. Ég hamaðist við að breyta skipulaginu í töskunum en sá varla fyrir tárum.
Svo nú erum við ein í kotinu ég og unginn minn litli. Honum finnst versta að vera ekki með pabba sínum og svo langaði hann svo mikið að vera á hóteli við ströndina. Mér finnst ég ömurlegasta mamma í heimi. Þessi ferð kom mér reyndar ekkert við að öðru leiti en það að ég vissi að ég þyrfti að pakka fyrir ungana. En ég hefði mátt vita það að ég ætti að spá meira í þessu. Ljónið kennir sér alfarið um, en er hægt að búast við því að hann fari að taka ábyrgð á svona hlutum ef að þeir hafa alltaf verið í mínum höndum? Nei, það er ekki hægt. Þetta er mér að kenna. Og mín hegning er að vita það að ég eyðilagði þessa ferð fyrir barninu mínu.
Ég er líka einstaklega sjálfselska og fúl yfir því að nú er það ekki bara svo að ég er ekki ein, heldur hef ég enga barna píu og verður því ekkert af neinu sem að ég ætlaði að gera.
Ég mun gera mitt besta til að gera glaða daga fyrir ungann minn. Það er ekki það að það sé ekki yndislegt að vera með honum og að við höfum gott af því að vera bara tvö ein. En planið var annað fyrir okkur bæði.
Ljónið hefur lofað að gera eitthvað með unganum þegar að hann kemur aftur heim. Bara þeir tveir að gera eitthvað spés, það er eins gott að hann standi við það!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
21.8.2008 | 17:41
Svar í nánd
Í dag mun koma í ljós í hvaða átt líf mitt stefnir. Tíminn skríður áfram og ég kem engu í verk, ég hef beðið eftir þessari stund lengi, lengi en ég er samt ekki tilbúin.
Að öllum líkindum mun mín heitasta þrá aldrei rætast. Ég mun aldrei fá það sem hjarta mitt þráir svo heitt. Ég hef svo sem vitað þetta í langan tíma en vonin um hamingju hefur hefur blindað mig.
Svo ef að þið hafið smá auka fyrir mig, viljið þið þá senda mér stuðning yfir hafið?
Hér er hluti af texta sem að ég skrifaði:
My stomach tightens and my hart is screaming
It is screaming your name.
My hart crys out fore you, it shouts with al of its strength,
but no one can here it but me.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
21.8.2008 | 17:31
Sjaldgæf en gleðileg frétt
Það er ekki oft, ja.... þetta er reyndar í fyrsta sinn sem að ég les eða heyri um karlmann sem gerir eitthvað þessu líkt. Mér finnst það yndislegt að maðurinn skuli hafa svona sterka löngun til að verða faðir.
![]() |
Ricky Martin eignast tvíbura |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.8.2008 | 22:48
Ég er svo stolt af þessum strákum!
Brjóstkassinn breikkar og Íslands stoltið fær extra púst þegar að strákunum "okkar" gengur svona vel. Ég var að spá í að ath hvort að ég gæti horft á leikinn á netinu en varð svo löt, að vaka hálfa nóttina til að horfa á handbolta vék fyrir lönguninni til að fara að sofa. Ég sé nú samt eftir því, hefði alveg getað notað adrenalínið sem að þessi leikur hefði fyllt líkama minn af
Þegar að ungarnir voru litlir urðu þeir oft hræddir við öskrin í mömmu sinni þegar að hún var að horfa á handboltann. Núna eru þeir lífsreyndir og vita að ef að horft er á hand eða fótbolta þá á að öskra úr sér lungun. Það er að segja þá mun mamma öskra úr sér lungun. Þeir hafa líka lært að hafnarbolti getur haft svipuð áhrif á mömmuna, en það á samt bara við þegar að þeir eru að keppa
![]() |
Jia-you Is-land |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.8.2008 | 21:21
Ég elska svona fréttir
Ég er oft ekki dugleg að lesa um það sem er að gerast í heiminum af því að það er næstum því alltaf vondar fréttir. Ég veit að ég á að vera duglegri viðað fylgjast með.
En svo annað slægið rekst maður á svona fréttir og þær ylja mér um hjartað Ég er mikið glöð fyrir hönd skjalbökunar að fólkið sem vinnur þarna lætur sér nægilega annt um hana til að létta henni lífið.
![]() |
Skjaldbaka á hjólum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)