Færsluflokkur: Bloggar

Æ komm on....

Miljón dali!

Hvað hefði svo sem geta gerst? Ó jú hann hefði getað bitið í hnífsblaðið og fundið hart undir tönn. Æ ég veit það ekki, en mér finnst þessi miljón smá, oggu. poggu, pínu lítið fáránleg. Afsökunarbeiðni og 500 fríar samlokur hefðu verið nóg fyrir mig Halo


mbl.is Segist hafa fundið hnífsblað í Subway
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það má þakka Guði..

.. og skörpum augum eiginkonunnar að ekki fór verr. Fæ bara hroll við tilhugsunina um hvað hefði getað gerst ef að allir hefðu sofnað.


mbl.is Rauk upp á þak til að slökkva eldinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mín stakk líka af :o(

 Þegar að við hjónin vorum búin að koma okkur fyrir í okkar fyrstu íbúð í NY komst Sporðdrekinn ekki hjá því að taka eftir öllum meðleigjendunum. Þessir meðleigjendur borguðu ekki leigu og fóru og komu eins og þeim sýndist. Þeir komu aðallega í myrkri og fóru í ljósi. Þeir voru í öllum stærðum og létu þeir stærstu heyra vel í sér þegar að þeir stukku af stað til að fela sig. Nei við þetta gátum við ekki búið, en það var sama hversu oft var eitrað alltaf komu þeir aftur. Já þetta voru kakkalakkar, ógeðsleg kvikindi sem fara alstaðar og bera allt með sér  Sick

Við brugðum við með því að fá okkur eðlu. Ég var nú ekkert allt of hrifinn af hugmyndinni fyrst, bjóst reyndar ekki við miklu, hvernig átti ein lítil eðla að borða alla þessa bjakkalakka!? En svo fór heilinn af stað og ég gerði mér grein fyrir því að ég hafði nú búið í stuttan tíma í landi þar sem að eðlur löbbuðu inn og út úr íbúðinni minni eins og þeim hentaði og þar var ég fegin að hafa þær. Þær héldu jú skorkvikindunum í skefjum.

Svo úr því varð að við hjónin fórum í dýrabúð og keyptum krúttlega eðlu. Þetta var gecko eðla, hún/hann var falleg á litinn. Við gáfum henni nafn og þar með var hún orðin hann, köllum hann bar G hér.

G sinnti sínu starfi vel og ekki leið á löngu þar til að hann hafði komið því svo við að engir bjakalakkar voru eftir í okkar íbúð og þeir sem bjuggu í næstu íbúðum þorðu ekki fyrir sitt litla líf að koma í heimsókn. Þetta var ÆÐI! En.... elsku G hafði nú ekkert að borða! Hvað skyldi nú til bragðs taka? Ég var að spá í að leigja hann nágrönnunum fyrir gott verð en var hrædd um að fá hann ekki til baka

Svo að Sporðdrekinn vað því fasta kúnni í dýrabúð að kaupa í matinn fyrir G. G var sólkinn í engisprettur, þessi elska tók á móti mér við dyrnar þegar að hann heyrði í matnum sínum.

En svo urðu miklar breytingar í lífi Sporðdrekans og gleymdist of oft að koma við í dýrabúð á leiðinni heim frá vinnu. Dýrabúðir voru ekki opnar jafnlengi og matvöruverslanir okkar mannanna og því var G orðin ansi svangur.

Það kom að því að hann lýsti óhamingju sinni í verki og stakk af! Ég horfði á eftir "vini" mínum og hreinsitækni lalla sér út um gluggann hjá okkur. Æ hvað ég varð leið, tárin streymdu niður kinnar mínar og samviskubitið nagaði hjartað. Hvað verður nú um hann? Spurði ég Ljónið, "Elsku Sporðdreki minn, það er nóg að éta fyrir hann þarna úti og inni í næstu íbúðum". Já ok það er gott að hugsa um þetta svona.

Ég sannfærði mig því um að G væri bara glaður með þetta allt samann. Og núna þegar að ég hugsa um G sé ég fyrir mér stóra og mikla eðlu kjaga sadda um götur NY borgar Cool

 

En ég vill koma því fram að ég skil ekki hugsunarháttinn hjá fólki sem smyglar dýrum inn í landið okkar! Þarna er verið að taka áhættu, áhættu sem að enginn á ekki að leyfa sér að taka.


mbl.is Eðla á ferð í Keflavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég fæ hroll...

.. í hvert skipti sem að ég les eitthvað tengt Rússneska hernum nálægt okkur. Treysti þessum köllum ekki lengra en ég gæti kastað þeim og er það nú ekki langt.


mbl.is Rússar aftur á ferðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hálf tómt í kotinu

Nú eru mamma og pabbi farinn Crying, það er því hálf tómt í kotinu. Við áttum yndislegar stundir á meðan að þau voru hér.

Minnsti unginn brast í grát í gærkveldi þegar að hann var að fara að sofa "Ég sakna ömmu og afa" sagði hann þegar að ég spurði hvað væri að. Hann hafði fengið hana ömmu sína til að kúra hjá sér flest kvöld á meðan að hún var hér, ég veit að það var það sem að hann vantaði í gær. Mamma er yndislega mjúk og góð kona, hún fékk sig ekki til að fara frá honum fyrr en að hann var sofnaður og þá iðjulega með litlu puttana sína flækta í hárinu á henni.

Við finnum öll fyrir tómarúmi núna, það er hálf erfitt að koma rútínu á hlutina aftur.

Ég sakna þess að hafa angandi kaffi ilm í húsinu, en pabbi var með könnuna í gangi mest allan daginn. Ég sakna þess tíma sem að við mamma áttum saman, sitjandi úti undir stjörnunum flissandi eins og smá stelpur, leysandi gátur alheimsins og sudoku.

Við munum hittast aftur á næsta ári, en vá hvað það er langt þangað til. Á næsta ári!.....


Sæluvíma í foreldrafaðmi

Ég vill bara láta vita af mér Wink

Hér er bara sæla Við höfðum ekki séð mömmu og pabba í allt allt of langan tíma og ó hvað það var yndislegt að sjá þau á vellinum InLove Og að fá að vakna við röddina þeirra og kaffiilm Grin

Knús á ykkur öll og takk fyrir fallegar kveðjur við síðustu bloggfærslu mína Heart

 


Skammist ykkar!

Það er það sem ég segi, virðing fer þverrandi.

Það er ekki bara þessi mikla vanvirðing sem sýnd var með að stela Íslenska fánanum af leiði Jóns Sigurðssonar. Heldur sér maður þetta út um allt. Hvernig fólk talar, ber sig, kemur fram hvort við annað og eigur annarra. Já og ekki bara eigur annarra heldur sína eigin líka. Stundum er eins og það sé bara svalt að vera með sem mestu óvirðinguna. Sýna lítinn sem engan áhuga á því að gera vel við náungan eða umhverfið.

Er málið kannski að virðing fyrir sjálfinu ver dvínandi og því dvínar einnig virðing fyrir mönnum, dýrum, jörð og hlutum í leiðinni?

Hver svo sem ástæðan er, þá óska ég af öllu hjarta að þessi þróun snúist við.

 

E.S. Ég mun vera lítið hér á næstunni, vona að þið saknið mín ekki um of Wink


mbl.is Fánum stolið af leiði Jóns Sigurðssonar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta eru ekki nýjar fréttir

Fyrir utan rökstuðninginn sem fylgir fréttinni þá kveikir fyrsta máltíð dagsins á brennslunni. Því lengri tíma sem að líkaminn er í brennslu því betra fyrir þá sem vilja grenna sig, ekki satt Wink


mbl.is Stór morgunverður auðveldar megrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æ nei!

Synd að þetta skildi þurfa að fara svona. Ég var svo jákvæð fyrir því að þetta myndi ganga upp og dýrinu yrði bjargað. Ég vona bara að það slysist ekki fleiri ísbirnir til Íslands.


mbl.is Ísbjörninn að Hrauni dauður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég verð svo reið!

Hvern djö...... er fólk að hugsa? Ef eitthvað.

Hvernig í ósköpunum getur fólki dottið í hug að binda drengin við tré yfir nótt og það tvær nætur í röð. Fyrir utan hvað það er ómannúðlegt að binda drenginn, hann getur ekki hafa klórað sér, farið á salernið eða hvað sem hefur komið upp á. Annað, hann hefur ekkert geta gert ef að dýr hefði ráðist á hann, eða pöddur verið að angra hann. Ég fæ hroll af viðbjóði.

Ég vona að hvað sem það var, sem varð drengnum að bana hafi gerst fljót, en ekki að greyið drengurinn hafi þurft að kveljast.

 


mbl.is Ákærð fyrir morð á 13 ára pilti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband