Færsluflokkur: Bloggar
17.6.2008 | 14:20
Vá en frábært!
Til hamingju með þetta Gerður Gunnarsdóttir!
Maður sér verkið nú ekkert allt of vel á þessari mynd sem fylgir fréttinni, en það sem að ég sé finnst mér töff.
![]() |
Friðarboðskapur steyptur í brons |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.6.2008 | 03:28
Lýðveldi já takk!
Mitt þakklæti fer til Jóns Sigurðssonar og allra sem gerðu þennan dag mögulegan fyrir Íslensku þjóðina!
Til hamingju með daginn Íslendingar!!
Blómin spring út og þau svelgja í sig sól.
Sumarið í algleymi og hálft ár enn í jól.
Í hjarta sínu fólkið gleðst og syngur lítið lag,
því lýðveldið Ísland á afmæli í dag.
Hæ, hó, jibbí, jei og jibbí, jei. Það er kominn 17. júní.
Hæ, hó, jibbí, jei og jibbí, jei. Það er kominn 17. júní.
Jóni heitnum Sigurðssyni færir forsetinn,
firnamikinn árvissan og stóran blómsveiginn.
Fjallkonan í múnderingu prílar upp á pall,
með prjáli les upp ljóð, eftir löngu dauðan kall.
Hæ, hó, jibbí, jei og jibbí, jei........
Skrúðgöngurnar þramma undir lúðrasveitarleik,
lítil börn með blöðrur, hin eldri snafs og reyk.
Síðan líður dagurinn við hátíðannahöld,
heitar étnar pylsurnar við fjölmörg sölutjöld.
Hæ, hó, jibbí, jei og jibbí, jei........
Um kvöldið eru allsstaðar útidansleikir,
að sunnan koma rándýrir skemmtikraftarnir.
En rigningin bindur enda á þetta gleðigeim,
því gáttir opnast himins og allir fara heim
Hæ, hó, jibbí, jei og jibbí, jei........
Koma svo! Allir samann!
Hæ, hó, jibbí, jei og jibbí, jei........
Svo af tilefni heimsókna ísbjarnanna undanfarna daga, vill ég benda á þennan vef: http://polybear.org/
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
15.6.2008 | 03:22
Ég held að ég sé með svarið!
Konur eru byggðar til að ganga með og ala börn. Mjaðmagrind okkar er því gerð til að ganga til og frá, konur þyngjast einnig þegar að þær eru barnshafandi og þetta veit náttúran. Mjaðmagrind okkar þarf því að vera sterk.
Kannski svolítið einföld og barnaleg útskýring en ég held að svona sé þetta bara.
![]() |
Mjaðmir karla þola síður ofþyngd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
15.6.2008 | 03:05
Græðgi og hræsni!
Græðgi og hræsni!
Alveg er það maggnað hvað líf verður ódýrt þegar að það kemur að fjármálum. Ísbirnir voru nægilega mikilvægir til að fryða þegar að mennirnir þurftu ekki að ná í olíuna sína. Peningar og völd eru stórhættuleg samblanda.
Ég vona að næsta stjórn Bandaríkjanna skíti ekki svona upp á bak aftur og aftur eins og sú stjórn hefur gert sem að er nú við völd.
![]() |
Mega hrekja ísbirni á brott |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.6.2008 | 21:34
Hvað er að fólki?!
Ég bara get ekki skilið vonskuna í mannfólkinu!
Hvernig stendur á því að fólki um allan heim finnst bara allt í lagi að loka aðra manneskju inni! Þessi kona var orðin 29 ára þegar að hún var lokuð inni vegna þess að hún var barnshafandi. Halló! 29 ára! Við erum ekki að tala um neinn ungling hérna, heldur fullorðna manneskju. Nei, ég er ekki að segja að það sé í lagi að loka ungling inni.
Og ekki nóg með að fjölskyldan hafi lokað hana inni heldur létu þau hana lifa í sorpi. 17 ára sonur hennar var líka í húsinu, ætli honum hafi líka verið haldið þar sem fanga? Ja, hvernig ætli fjölskyldan hafi annars getað útskýrt hvaðan drengurinn kom. Ætli drengurinn hafi nokkurn tíman fengið að fara út?
Fólk er bæði grimmt og fífl
Ég hafði óvart sett inn að konan hefði verið 39 ára þegar að hún var lokuð inni, auðvitað átti það að vera 29 ára og hef ég því lagfært það. Takk fyrir ábendinguna Hippókrates.
![]() |
Lokuð inni í 18 ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 14.6.2008 kl. 02:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
12.6.2008 | 14:16
Þetta er náttúrulega bara della!
Það veit hvert mannsbarn að fegurstu konur heims eru Íslenskar!
Það eina sem gæti útskýrt þetta er að það búi svona margar Íslenskar konur í Hollandi!
![]() |
Fegurstu konurnar ekki á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (33)
10.6.2008 | 13:11
Þetta er nú gott að lesa
Aumingja stúlkan á auðvitað eftir mikla og erfiða vinnu. Það er vonandi að fjölskyldan eigi eftir að eiga góða ævi það sem eftir er.
![]() |
Vöknuð úr dái og farin af sjúkrahúsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
9.6.2008 | 13:36
Örlög
Þarna gripu örlögin inn í, þessi maður er auðsjáanlega ekki búin að gera það sem að hann þarf að gera í þessu lífi. Gaman væri að fá að vita seinna hvaða áhrif þetta hafði á restina af lífi hans.
![]() |
Sjálfsvígstilraun á röngum lestarteinum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
7.6.2008 | 02:42
Gott mál
Ég hef nú ekkert meira um það að segja, er bara ánægð með lögregluna í Stokkhólm!
![]() |
Nýnasistar handteknir í Stokkhólmi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
6.6.2008 | 13:42
Hvað með skattborgara?
Þetta er falleg hugsun hjá Þorsteini, en.... Þar sem að allur sakarkostnaður greiðist úr ríkissjóði. þá finnst mér að frekar ætti að nota þessa peninga til að borga sakarkostnaðinn en ekki taka pening úr vasa ríkisins.
![]() |
Féð renni til góðgerðamála |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)