Færsluflokkur: Bloggar

Þetta er svo mikill hryllingur!

Ég fæ gæsahúða fljóðbylgju við að lesa um svona hrylling. Það er árið 2008 og enn er fólk að misþyrma dætrum sínum á þennan hátt Crying

Ég er ánægð með að það skuli vera unnið í þessari kæru En.... af hverju var það ekki gert STRAX!?


mbl.is Hjón ákærð fyrir að limlesta fimm dætur sínar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenska Ofurkonan berst fyrir landinu OKKAR!

Þetta er frábært framtak hjá Björk og meðlimum hljómsveitarinnar Sigur Rós!

Það er vonandi að þau fái gott veður og að almenningur njóti þess sem að þessir frábæru lystamenn eru að bjóða uppá.

Ég vona líka að þetta þétti fólk saman til að passa upp á landið sitt. Það eru nefnilega ekki bara stórvirki sem ógna landinu heldur er það líka drasl og vanvirðing gagnvart nátúrunni. Já drasl sem að fólki finnst of erfitt aðfara með í næsta rusl og fleygir því frá sér út í náttúruna.

Höldum landinu hreinu og fallegu og borginni okkar líka!

Ég vill persónulega þakka Björk og meðlimum hljómsveitarinnar Sigur Rós fyrir frábært framtak!


mbl.is Ísland verði áfram númer eitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofsaveður - Rafmagnsleysi - Börn

Það fór ofsaveður yfir hjá okkur í gær, við erum heppnari en margir því hér er allt ok. Yngsti Unginn var hræddur við að fara að sofa, var viss um að það kæmi hvirfilbylur hjá okkur. Í endann lá ég hjá honum þar til að hann sofnaði. Hann róaðist fullt þegar að ég fór að tala um hvað mér finnist notalegt að heyra í þrumunum og rigningunni þarna úti. Fyrst horfði hann á mig undrandi, svo glaður og í endann sofnaði gullið með bros á vör InLove

Það fóru tré niður allt í kringum okkur og er því rafmagnslaust á mjög mörgum stöðum talið var að um 500,000 heimili væru án rafmagns í gærkveldi. Þar á meðal eru nágrannar mínir hinu megin við götuna, ég er svo þakklát fyrir að hafa sloppið. Einnig er rafmagnslaust í skólum Unganna og voru því allir sendir heim eftir c. 3 - 4 tíma í skólanum.

Hér er því fullt hús! Fimm stk háværir unglingar hafa sparkað af sér skónum, dregið fyrir gluggana í stofunni, fengið sér gos og eru nú að spila tölvuleik. Þar sem að þeir sitja allir í sama herbergi og nokkrir á sama sófa, þá er alveg nauðsynlegt að öskra allt sem segja þarf og hlæja hærra en sá sem situr við hliðina á þér W00t

Yngri Ungarnir fengu líka sína vini yfir en sem betur fer langar þeim að leika úti! Við sjáum hvað það endist lengi, ég er nokkuð viss um að þau koma hlaupandi inn þegar að þeim verður of heitt.

Ég þakka fyrir að börnin mín vilja koma heim með vini sína og þá sérstaklega unglinga-Unginn, það er gott að vita að þeim líður vel hér. Við Unginn tölu stundum samann á Íslensku þegar að vinir hans eru hér. Oft heyri ég Ungan segja þegar að ég labba í burtu "Veistu hvað mamma sagði ......." svo kemur í vininum " Nei! Ertu ekki að djóka!" "Nei" svo er hlegið. Ég er víst ekkert allt of stíf og finnst vinum unglinga Ungans oft mjög gaman af húmornum mínum. En þeir eru líka snöggir að þakka fyrir sig og biðjast afsökunar ef þarf, þá kemur "Sorry Mrs. Sporðdreki" eða "Thank you Mrs. Sporðdreki". Þetta eru svo vel uppaldnir ólátabelgir

Ég þakka líka fyrir að ekki hafi neinn slasast eða eitthvað eyðilagst hér hjá okkur. Það varð mikið tjón hjá mörgum og ekki það langt frá okkur. 


Kallið mig klikk..

 

.. en mér finnst sköllóttir karlmenn sjarmerandi.


mbl.is Ný meðferð við skalla virðist lofa góðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Talandi um þjófa....

.. þá verð ég bara að deila með ykkur reynslu minni af nýrri tegund veskjaþjófa. Ég veit að það er ekki Wal Mart á Íslandi en ef að þig þekkið einhverjar konur sem búa erlendis og versla í Wal Mart endilega látið þær vita af þessu!!

Ég var sem sagt að setja vörurnar mínar í bílinn eftir að hafa verið að versla í Wal Mart. Þá komu til mín tveir vel vaxnir, gullfallegir menn, svona kúrekatýpur.

Hvorugur er í skyrtu og fara þeir að þrífa framrúðuna hjá mér með klútum og rúðuúða. Á meðan þeir struku rúðuna hjá mér gat ég ekki annað en horft á vel þjálfaða brjóstvöðvana og grjóthörðu magavöðvana. Þegar að ég bauð þeim svo þjórfé afþökkuðu þeir, en báðu mig þess í stað að keyra sig í aðra búð. Ég ákvað því að skutla þeim og þeir setjast báðir í aftursætið.

Á leiðinni fara þeir að tala um hvað þeim langaði til að gera við mig kynferðislega. Svo klifrar annar þeirra fram í og fer að kyssa á mér hálsinn og biður mig að stoppa bílinn svo að við getum haft samfarir!!

Nú á meðan að þetta gerist stelur hinn gaurinn veskinu mínu!!

Veskinu mínu var stolið síðasta Laugardag, Sunnudag, tvisvar á Mánudaginn, og aftur á Miðvikudaginn, í gær og mjög líklega aftur á morgun.


mbl.is Bannað að taka skó þjófa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er málið!

SporðdrekiSporðdreki: Þegar þú veist að þú ert elskaður, slakar allur líkaminn á. Þú ert með báðar fætur á jörðinni. Hvar sem þú festir rætur færðu næringu og vex.

 


Gat gerst!

Það kemur mér ekki á óvart að þessi þrjú lönd, Bandaríkin, Rússland og Kína, Séu mótfallin banninu.

Risaeðlu hugsunarháttur og mikilmennsku brjálæð.
 


mbl.is Samningur um bann á klasasprengjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VÁ!

 

Heppni?

Örlög?

Eða......

Ofurmenni?!?!

 


mbl.is Bjargað í tvígang úr húsarústum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

JÁ!!!

Já!!!

Já!!

Já!!

Til Hamingju Regína og Friðrik Ómar!!! 

GrinWizardGrin

Til Hamingju Ísland!!

 

 

 


Ok! Ég ætla ekki að gera þetta að vana....

.. en þessi bara hittir beint í mark!

SporðdrekiSporðdreki: Að hluta til viltu reyna að þóknast öðrum því það er erfitt að vera ekki samþykktur. Gefðu heiminum tíma til að skilja þig. Vertu bara enn skrýtnari.

Fólkið í móðurætinni er margt frekar skrýtið og við ELSKUM það. Því skrítnara því betra. Ég ætla að gefa ykkur gott dæmi:

Elsti unginn minn var eitthvað að bulla, var með einhvern unglinga húmor og ég bara náði honum ekki! Hinsvegar fannst mér æðislega gaman af Unganum, hann var í svo miklu stuði . Svo hlæjandi segi ég: Þú ert svo skrýtinn!

Unginn: Er það?

ÉG: Já, ógeðslega skrýtinn og bara hálf ruglaður.

Skælbrosandi segir Unginn:  Takk mamma!

Svei mér þá ef að þetta hafa bara ekki verið besta hrós sem að ég hefði getað gefið Unganum Grin


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband