Færsluflokkur: Bloggar

Spá sporðdrekans fyrir daginn i dag

SporðdrekiSporðdreki: Þú vilt alls ekki troða neinum um tær, en þú ert í sendiför. Um leið og afgangurinn af heiminum sér að þú lætur ekkert stoppa þig, færir hann sig frá.

Þetta hljómar vel! Ég verð nú bara sterk við að lesa þetta og ætla algerlega að hunsa orð þeirra sem segja "Þetta er nú bara stjörnuspáin af mbl" Wink


Ég óska..

.. einum ungum mann sérstaklega til hamingju með tilnefninguna sína. Sá ungi maður liggur nær hjarta Sporðdrekans en allir hinir á listanum og þess vegna fær hann súper dúper hamingjuóskir WizardInLove 

En auðvitað óska ég öllum til hamingju með sína tilnefningu.

Mér finnst líka frekar svalt að KK minn uppáhalds Íslenski tónlystarmaður hafi hlotið tvær tilnefningar fyrir það hlutverk sem að hann fór með í "Fool 4 Love"  Happy


mbl.is Tilnefningar til Grímunnar kynntar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snúllan!

Mig langaði nú bara til að knúsa hana. Ég væri til í að sjá gjörninginn.

Mér finnst kveðjan góð sem að hún sendir Íslendingum, þar óskar hún íslendingum góðs kynlífs um allt land. Ég tek undir þessa kveðju frá Dr. Ruth.


mbl.is Kynlífsráðgjöf áttræðrar konu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég vissi að við ættum eitthvað sameiginlegt!

Ég átti þetta til, að dansa upp á borðum. Bæði í vinnunni (nei ekki strippari) og mér til gamans.

Ég flutti erlendis eftir að ég hætti á þessum skemmtilega vinnustað, þar sem að ég stökk upp á borð og tryllti liðinn W00t og sást lítið á jamminu hér heima, þar sem að ég átti einnig til með að stökkva upp á borð. En eftir að ég flutti aftur heim sex árum seinna, fór ég að vinna sem þjónustustúlka á öðrum skemmtilegum en þó mun... rólegri stað.

Einn daginn er ég að hreinsa af borði hjá tveimur herramönnum og spyr þá hvort að ég megi bjóða þeim kaffi?

"Nei takk" Segir annar þeirra. "En þú mátt dansa fyrir mig...." Wink

Vóvvv hvað mér brá! Ég er meira að segja nokkuð viss um að ég hafi roðnað, svo stamaði ég "Það er svo langt síðan... ég er hætt því"

Bjóst ekki við að ókkunugur maður myndi eftir þessu og hvað þá eftir mér sex árum seinna. En ég hef augljóslega verið eftirtektarverð Cool

Ég var að lesa bloggið hans Markúsar þegar að mér datt þessi saga í hug og er hún því á tveimur stöðum svo til orð fyrir orð Whistling


mbl.is Dansar uppi á borði fyrir manninn sinn og vini hans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég hefði viljað hitta þessa konu

Ég held að maður verði betri bara við að hitta gott fólk og hlusta á það tala. Ég hefði viljað hitta þessa konu og jafnvel fá að koma við hönd hennar. Ég er ekki þessi manneskja sem kippir sér upp við frægt fólk, söngvara, leikara... (Ja ok smá, en ég þarf hvorki að koma við það né tala við) En þessi kona er ofurhetja, alvöru ofurhetja. Hér þurfti enga ofurkrafta td. að geta flogið eða klifið veggi.

Ég tek þetta til baka kannski voru ofurkraftar á ferð, það þarf meira en lítið hugrakka manneskju til að gera það sem að Irena Sendler gerði. Hún hefur verið ofurhugrökk og ofurgóð. Engill í mannmynd sagði einhver og mikið er ég sammála.


mbl.is Irena Sendler látin 98 ára að aldri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konur standa saman

C/P af blogginu hennar Dísu Dóru:

Konur standa saman

Sunnudaginn næstkomandi munu konur standa saman, í bókstaflegri merkingu, fyrir betri heimi komandi kynslóðum til handa. Konur geta tekið sig saman og staðið í garðinum heima hjá sér, í sumarbústaðnum eða hvar sem þær eru staddar kl. 13 á Hvítasunnudag.

Á Reykjavíkursvæðinu er konum, og ástvinum þeirra, stefnt í Laugardalinn nánar tiltekið við Þvottalaugarnar. Það verður safnast saman og íhugað í þögn í 5 mínútur um betri heim með hreinu drykkjarvatni, nægum mat og lífi án ofbeldis, öllum börnum til handa. Hringt verður inn í þögnina kl. 13:00.

„Standing Women" er alþjóðleg hreyfing kvenna sem tók höndum saman 11. maí á síðasta ári fyrir betri heimi. Í ár verður sami háttur á og nú með þátttöku íslenskra kvenna en í fyrra stóðu konur saman í öllum heimsálfum, samtals 75 löndum. Á þessari slóð má sjá myndband frá atburðinum í fyrra: http://www.youtube.com/watch?v=_eNJ4oVQKxU

Undirrituð samtök kvenna á Íslandi eru í forsvari fyrir viðburðinum hér á landi og hvetja félagsmenn sína jafnt sem konur á landinu öllu til að taka þátt!
Kvenréttindafélag Íslands, Kvenfélagasamband Íslands, UNIFEM á Íslandi, Blátt áfram og Stígamót.

Hvet ykkur til að taka þátt sem og að birta þetta á ykkar bloggi Heart



Að mínu mati..

..er þetta fáránlegt mál.

Ég skil alveg að fólk sem finnist það vera fast í líkama sem er ekki þeirra, fari í svona aðgerðir. Þetta fólk er þá væntanlega að sækjast eftir því að lifa normal lífi, þá á ég við í líkama þess kyns sem að það finnst vera þeirra.

En.... þessi maður er í lífstíðar fangelsi!

Maðurinn er í fangelsi fyrir karlmenn!

Er þetta kannski trix til að láta síðan færa sig yfir í kvennafangelsi?

Eða vill maðurinn geta stundað limur inn í leggöng, kynlíf með meðföngum sínum í karlafangelsinu?

Auðvitað myndi það valda óróa og látum ef að maðurinn fengi að verða kvenmaður innan veggja karlafangelsis. Þegar að ég er að tala um "manninn" þá er ég að tala um líkamann sem að sálin er í en ekki hvort að honum líði eins og karlmanni.

Og annað, hver á að borga aðgerðina? Eiga skattborgarar að borga kynskipti aðgerð fyrir fanga?

Nei það finnst mér ekki!


mbl.is Andmælir kynskiptiaðgerð fanga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki láta mig gubba!

 Tekið af mbl.is:

Fritzl gagnrýndi einnig fréttaflutning fjölmiðla af málinu, í News og  sagði fjölmiðla einungis hafa greint frá annarri hlið málsins. Þegar ég fór inn í jarðhýsið færði ég dóttur minni blóm og börnunum bækur og leikföng. Ég horfði á ævintýramyndbönd með þeim á meðan Elisabeth eldaði uppáhaldsréttinn okkar og síðan settumst við öll niður og borðuðum saman."

Heldur maðurinn í alvöru að einhver geti horft á hann og sagt "Ó hvað hann er góður fjölskyldufaðir".

Mig langar til að gubba Sick og svo gubba pínu meira Sick


mbl.is Varðhald yfir Fritzl framlengt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Talandi um brjóst

Síðasta bloggfærsla og athugasemdir, fjalla mikið um brjóst.

Ég er búin að vera voða dugleg í ræktinni og að passa upp á matarræðið. Ég varð því rosa ánægð um daginn þegar að ég var að skoða sjálfa mig í speglinum og tók eftir því að ég er farin að sjá fullt af vöðvum sem að ég hafði ekki séð lengi. Svo eru öll fötin mín að verða of víð og ég er farin að þurfa að minka beltin Grin

En.... í morgun fór ég í topp sem hefur alltaf gert mig að voða mikilli kynbombu . Hann hefur ýtt undir brjóstin og látið líta út fyrir að ég væri brjóstgóð. En hvað haldið þið?! Fitan hefur ekki bara farið af maga, mjöðmum, baki, mitti.... heldur líka úr brjóstunum!!!! CryingAngry

Mín er í fílu! Ég er að druslast þetta áfram með tvo tepoka og ég sem drekk ekki einu sinni te!! W00t


Það hlaut að vera!

Ég var með mína unga á brjósti í 13, 12 og 11 mánuði og þeir eru líka einstaklega vel gefnir

HeartHeartHeartInLove


mbl.is Áhrif brjóstamjólkur á greind barna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband