Færsluflokkur: Bloggar

Að sleppa!

Að sleppa tökum, þýðir ekki að mér standi á sama, það þýðir: ég get ekki lifað lífinu fyrir aðra.

Að sleppa, þýðir ekki að einangra sig frá, heldur að skilja, að ég get ekki stjórnað öðrum.

Að sleppa, er ekki að standa undir, heldur að leyfa öðrum að læra að eigin reynslu.

Að sleppa, er að viðurkenna vanmátt, sem þýðir: úrslitin eru ekki í mínum höndum.

Að sleppa, er ekki að breyta öðrum eða ásaka, heldur að gera það sem ég get gert úr mér.

Að sleppa, er ekki að bera ábyrgð á, heldur að bera umhyggju fyrir.

Að sleppa, er ekki að kippa í lag, heldur að vera hvetjandi.

Að sleppa, er ekki að dæma, heldur að leyfa öðrum að vera eins og þeir eru.

Að sleppa, er ekki að vera önnum kafin við að stjórna örlögunum, heldur að leyfa öðrum að hafa áhrif á eigin örlög.

Að sleppa, er ekki að afneita, heldur að sætta sig við.

Að sleppa, er ekki að nöldra, rífast eða skammast, heldur að leita að eigin mistökum og lagfæra þau.

Að sleppa, er ekki að laga allt að mínum þörfum, heldur að taka hvern dag fyrir sig og njóta hans.

Að sleppa, er ekki að gagnrýna eða skipuleggja aðra, heldur að vera það sem mig dreymir um að vera.

Að sleppa, er ekki að velta sér upp úr fortíðinni, heldur að njóta dagsins í dag og framtíðarinnar.

Að sleppa, er að óttast minna og elska meira.


Kannski er ég svona klikkuð

Mér finnst bara æðislegt að þessi hjón geti eignast barn. Það eru til fullt af fólki sem geta ekki eignast börn, sumir ættleiða en ég held að flestir myndu kjósa að eignast barn blóðskylt sér.

Þegar að kona fer í aðgerð til að verða maður er hún þá orðin maður?

Ég veit ekki hvert vísindalega svarið væri en fyrir mér, já. Ég er reyndar hissa á að hann geti gengið með barnið, hann hlýtur að hafa þurft að fara í einhverskonar hormóna sprautur aftur.

Já já kallið mig klikk en finnst ykkur ekki fallegt að þessi hjón geti gert þetta, konan getur ekki orðið ófrísk svo að maðurinn gerir það í staðin. Ég held að margir karlmenn myndu vilja geta gert þetta, þar að ef að konan þeirra gæti það ekki. Ég hef meira að segja heyrt karlmenn segja að þeir vildu geta fundið hversu yndislegt það er að vera með vaxandi líf inni í sér.

Ég las hér einhverstaðar á mogga bloggi að maðurinn gæti þá verið með barnið á brjósti, að mjólkurkyrtlarnir myndu stækka og fyllast. Þetta var sagt í svona "Gríni"

Við vitum öll að þegar að strákar eru að þroskast þá stækka mjólkurkyrtlarnir í þeirra brjóstum og stundum kemur meira að segja mjólk. 

Ég held að ef að maðurinn vill ekki vera með barnið á brjósti þá taki hann bara inn hormóna eftir fæðingu. 

 Fyrir mér er þetta meira fallegt en ljót. Þetta bara sýnir mér betur að líkaminn er furðuverk. Ég vona að þetta fólk fái að vera í friði, þau eru að ganga í gegnum bæði yndislegan og erfiðan tíma. Enginn hefur rétt á að skemma þetta fyrri þeim eða láta líta út fyrir að þetta sé ógeðslegt eða ljót.


mbl.is Þungaður karlmaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viljið þið biðja fyrir mér

Sporðdrekinn er ekki vanur að biðja um aðstoð, frekar þrjósk típa og vill gera allt sjálf. En núna stend ég í máli sem dregur úr mér allan þrótt, ég er hreinlega að brotna niður (ég veit svolítið væl, en svona líður mér). Ég veit ekki hvar ég á að fá orku til að standa fyrir framan börnin mín og láta sem ekkert sé, ég er niðurbrotin Sporðdreki.

Ég bið því ykkur kæru bloggvinir (þótt hálf ókunnugir séu InLove) og aðrir lesendur að biðja fyrir mér. Þið sem ekki biðjið, viljið þið hugsa eina litla fallega hugsun í mína átt.

 

 

 


Gleðilega Páska

Gleðilega Páska

kæru bloggvinir og aðrir lesendur.


Hvenær verður svo haldið heim á leið?

Ég leyfi mér að efast um mikilvægi þess að fá 100 verkamenn hingað alla sérhæfða í glervinnu. Nokkrir sérfróðir verkstjórar kannski, en eitt hundrað manns! Nei andskot...

Hvað gerist svo eftir að þeir hafa lokið vinnu sinni við þetta verkefni? Fara þeir heim?! Eða verða þeir búnir að kalla eftir allri fjölskyldu sinni og ekki verður nú hægt að pína fólk til að flytja af landinu þá! Eða hvað?

Ég held að það verði að hugsa þetta mál vel og vandlega og frá mörgum sjónarhornum.

 


mbl.is Sækja um leyfi fyrir 100 sérfræðinga frá Kína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sýndarmennska

Hvað á að ræða?

Við Kínverjar ætlum að halda áfram að kúga land þitt og þjóð. Þið hafið engan rétt á að fá landið ykkar aftur, við ætlum að eiga það! Svo ekki einu sinni láta þér detta í hug að biðja um sjálfstæði!

Má Dalai Lama einnig fordæma ofbeldi af völdum Kínverja eða má hann bara fordæma ofbeldi ef Kínverjar eru ekki gerendur?!?

Ég ætla að vona að það komi góðir hlutir út úr þessum fundi. Jákvætt hugarfar getur gert mikla hluti og því mun ég senda góða strauma og hugsanir út í loftið og vona að það hitti forsætisráðherra Kína í höfuðið.


mbl.is Reiðubúinn til viðræðna við Tíbeta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fólk að vinna vinnuna sína

Frábært að heyra að landamæraeftirlit skuli skila árangri. Það er auðsjáanlegt að þeir sem skoðuðu vegabréfin hér stóðu sig betur en þau sem skoðuðu þau á Spáni.


mbl.is Kínverjar með fölsuð vegabréf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru þetta undanbrögð hjá sendiherra Kína?

Flott hjá ungum jafnaðarmönnum!

En voðalega er þetta nú ódýrt af sendiherra Kína, að geta ekki tekið við bréfinu vegna óvænts páskaleyfis. Já og furðulegt að sendiráð geti leyft sér að "vita ekki" hversu langt leyfið er! Úps!

Við vitum ekki alveg hvenær okkur dettur í hug að koma til vinnu. Hvenær gefst þú upp á að koma með þetta bréf til mín?!? Það ætti að gefa mér smá hugmynd um það hvenær ég kem aftur til vinnu.

 


mbl.is Afhenda kínverskum stjórnvöldum mótmælabréf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mér finnst brjóst falleg - Fengið að láni frá Ómari R.

Ég held að þetta sé mikið feimni í fólki, brjóstin eru jú oftast hulin undir klæðum okkar. Við erum ekki vön að sjá þau skoppast fyrir framan okkur á almannafæri.

Svo er verður kannski líka að taka tillit til þess að konubrjóst kveikja undir tilfinningar sumra karlmanna. Ef að ég væri karlmaður sem fengi auðveldlega stinningu af að sjá bert konubrjóst þætti mér verra að sjá eina slíka í sundi, hvað þá fleiri .

Annars finnst mér konubrjóst falleg og er eins og versti karlmaður starandi á barmana á konunum í kringum mig. Ljónið sagði einu sinni við mig "Bíddu ert þú karlamaðurinn hér eða ég?" þetta sagði hann eftir að ég sagði við hann "Vá sérðu brjóstin á þessari, ekkert smá flott!".

Brjóst eru eins falleg, skítur, sexy og nitsamleg eftir því í hvernig skapi við erum.

Ég get horft á ber brjóst og "bara" eða ég get "VÁ! flott" eða, "mmmmhh" og þá er barn fast við geirvörtuna. Það er fátt fallegra í heiminum en kona og barn þegar að barnið er að nærast af móðurmjólkinni. Og ég er kona!

Ég meira að segja heillast af hinu kyninu, svo að ég skil hvernig karlmönnum getur fundist smá óþægilegt að vera innan um ber konubrjóst. Það getur líka verið mjög vandæðalegt að vera með konu sinni og rísa hold við að sjá ber brjóst annarrar konu í sundi.

Annars er mér svo sem slétt sama hvort að konur fara berbrjósta í sund eða ekki.

 

Bjóst, brjóst, brjóst og aftur brjóst....

 

Það eina sem mig langar í eru stinn, stinn brjóst.

Frá því snemma að morgni og til sólar lags

mig langar í þau núna strax strax strax.

Brjóst, brjóst , brjóst og aftur brjóst. 

.

Ég verð víst bara að lifa með mín

þótt mér finnist þau ekkert stinn og fín

Brjóst, brjóst, brjóst ég vil stinn brjóst.   

Texti: Sporðdrekinn (að mestu og smá Ómar Wink)

 Sunginn með einu af lögunum hans Ómar R. Lax lax lax og aftur lax

  

 


mbl.is Bannað að bera brjóstin í Hveró
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er að gerast í Tíbet?

Er ekki komin tími til að koma Tíbet til hjálpar og stoppa Kínverja?!?

JÚ!!

Ég fékk þetta lánað af bloggsíðunni hennar Birgittu Jónsdóttur (ég vona að það sé í lagi):

Það var margt annað sem ég hef þörf á að tjá mig og ætla því miður að skilja ykkur eftir með eitthvað sem ætti að hvetja ykkur áfram í að gera eitthvað, fékk eftirfarandi bréf áðan frá póstlista the Tibetan Uprising movement... ég vara við myndunum sem vísað er í og ætti þeir sem eru viðkvæmir alls ekki að skoða þær. Ég hef séð ýmislegt en barsmíðarnar sem drógu munkana úr hofinu í Kriti til dauða voru svo ómennskar að ég á engin orð til að lýsa harmi mínum. Munið að þessir munkar voru vopnlausir, að í öllum þeim mótmælum sem hafa átt sér stað í Tíbet undanfarið þá eru það borgarar sem hafa brugðist við með skemmarverkum ekki munkarnir. En þeir sem þora ættu að skoða þessar myndir og minnast svo orða kínverskra yfirvalda að þeir hafi ekki beitt ónauðsynlegu ofbeldi. Einn hafði greinilega verið barinn í kynfærin þannig að það var blóði drifið... 

Kæru vinir Tíbet og mannréttinda, látum í okkur heyra, skrifum sendiráðinu, sendum þeim þessar myndir og segjumst að við séum að fylgjast með ofbeldi og mannréttindabrotum þeirra, en ef þér blöskrar ástandið, í guðanna bænum, ekki gera ekki neitt.... 

Subject: A Helpless Cry and fresh Images from Inside Tibet

Below is a desperate call from a journalist colleague of mine who's having a hard time dealing with the situation for Tibetans, both inside and outside- as I'm sure many of us are.. Please take a look at the link of photos.. that just arrived! 

peace, wasfia

Viewers discretion required.

http://www.phayul.com/photogallery/flash/2008/ 

----------------------------------------------------

Dearest all,

At the moment I am just too saddened by the situation in Tibet. China claims only 10 lifes lost in Tibet but in reality it is more. When I see the poor response from UN and countries like Russia say it is a domestic problem or internal problems, I feel we are too helpless. I feel there is no human values or I feel the ideals of non-violent has no values.

I feel we are pathetic and desperate to have or gain strong

International supports anyhow. Tell me what can we do more? We are really helpless. Everyday I am hearing the death tolls in Tibet is

mounting up so rapidly. And on the other side these athiest China

tells lie to the world. Today at the protest at the main temple in

Mc'leod I saw atleast more than 10 people fainting while they are

protesting. And after seeing some pictures of the death bodies from Kriti monastery in eastern Tibet I am pretty much disturbed.

With the great hope from you and your friends please try to tell the world that China is doing genocide in Tibet. They want to erase our ethnicity from the world.

Please visit phayul.com picture news, we have posted some pictures of some people killed in Tibet. I can't see it again and again.

God bless Tibet!

with much love,

Tenzin Dasel

www.phayul.com 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband