Færsluflokkur: Bloggar
17.3.2008 | 23:38
Flott!
Er eitthvað slíkt í sigtinu á Íslandi?
![]() |
Mótmælt í Barcelona |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.3.2008 | 19:26
Sniðugt!
Þetta safn væri ég sko til í að skoða. Mannslíkaminn er svo ótrúlegur
![]() |
Gengið gegnum líkamann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.3.2008 | 20:37
Ég pissaði næstum því á mig
Við áttum yndislegan kött þegar að ég var stelpa, hann var ekkert fyrir að láta halda á sér, en honum fannst mikið gott þegar að maður kom og kúrðist í honum. Hann var í raun meira ljón en köttur, hann horfði á mann með svo mikilli ró og öryggi.
Þegar að þessa elska var svo til nýkomin til okkar, pínulítill kettlingur þá klifraði hann upp í tré. Veinið í honum barst inn um gluggann og við fórum að ath með krílið. Þarna var hann með hægri loppurnar á einni grein og þær vinstri á annarri grein. Svo horfði hann á okkur á milli greinana og vældi, ju hvað hann skalf skinnið litla.
Hann var svo yndislegur þarna uppi í tré, pínu lítill kafloðin hvítur og svartur mjálmandi, vælandi hnoðri. Ég missti mig algerlega. Ég fór að skelli hlæja, fyrstu viðbrögð mín eftir fyrstu hláturgusuna voru "Hvar er myndavélin?". Jú, jú auðvitað hjálpuðum við honum niður, en ekki fyrr en að ég hafði tekið mynd. Ég ætlaði aldrei að finna myndavélina, ég sá nefnilega ekkert fyrir hláturtárum.
Þegar að krílið var svo komið í fangið á mömmu skreið hann beint í hálsakotið á henni, þar róaðist hann niður. Ég hinsvegar hljóp á klósettið.
Ég á þessa mynd enn og hjartað mitt fyllist af hlýju þegar að ég skoða hana. Við vorum nefnilega vinir, kötturinn og ég
![]() |
Sprændi á bjargvættinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
16.3.2008 | 02:07
VÁ!!
Þetta er ekkert smá högg! Sem skellur þarna á upptökumanninn.
Ég veit að sprengjur eru hættulegar, ég veit að þær drepa fólk og eyðileggja hluti. En að sjá þetta svona sýnir manni vel hversu kröftugar þær geta verið (já ég veit þær eru til kröftugri).
Aumingja fólkið sem varð fyrir sprengingunum og því tjóni sem þær ollu.
![]() |
Margir látnir í Albaníu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.3.2008 | 02:15
Stokkandar einkenni
Það virðist vera að ganga einhverskonar Stokkandar einkenni. Hvernig stendur á því að fólk geti takið einhvern með valdi á móti vilja hans, þetta er mér að öllu óskiljanlegt. Hvað þá að fólk taki sig saman og nauðgi í hóp. Hverslags eiginlega brenglun er þetta! Og þeir sem ekki tóku þátt gerðu ekkert til að hjálpa þeirri er nauðgað var, sem að auðvitað gerir þá samseka í minni bók og ekki mikið betra fólk.
Þetta fólk var í kennaraskóla, það er eins gott að svona siðblint fólk var stöðvað áður en að það fór að kenna börnum!
Ég sagði á einhverri bloggsíðunni um daginn að ég vissi ekki til þess að nein önnur dýrategund en maðurinn tæki þátt í hópnauðgunum. Og var ég að tala um hverslags óeðli þetta er. Þá var mér bent á að stokköndin gerir þetta. Þar að stokkandarsteggir, hópnauðga kvenstokköndum (veit ekki hvort að þeir hafa annað nafn). Þess vegna tala ég hér um "stokkandar einkenni".
![]() |
Vikið úr skóla fyrir aðild að hópnauðgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
14.3.2008 | 16:40
Guð hvað ég er fegin
Ég vona að stúlkan hafi ekki mátt þola ofbeldi eða misnotkun af neinu tagi. Yndisleg að hún sé fundin
![]() |
Shannon Matthews fannst á lífi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.3.2008 | 19:08
Þetta þykir mér jákvætt
Alltaf gaman að lesa jákvæðar fréttir
Og hef ég bara ekkert meira um það að segja Jú bíddu, ég vona að þetta eigi eftir að ganga vel áfram.
![]() |
Draugabær að blómlegu þorpi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.3.2008 | 00:11
Ótrúlegur styrkur eiginkonunnar - Erfiður kúnni
Mikið dáist ég af styrk kvenna eins og Frú Spitzer og Frú Clinton. Þessar konur hafa staðið við hlið maka sinna þrátt fyrir svik þeirra gegn þeim. þær standa beinar í baka með þurr augun við hlið manna sinni á meðan að þeir viðurkenna fyrir framan allan heiminn að þeir hafi svikið konurnar sínar. Þessar sömu konur sem standa við hlið þeirra til að veita þeim styrk gegn ófögrum orðum almúgans.
Þær eru sjálfsagt enn hálf dofnar og vita ekki hvert á að snúa eða hvað á að gera þegar að þeim er skellt þarna fyrir framan myndavélarnar. Þær gáfu jú loforð um að standa við hlið maka síns, þar til dauðinn aðskildi þau. Þær hafa sko gert meira en skildu sína með þessu. En hvar standa þessir menn? Við hlið sjálfs síns?
Ég var að hugsa um það í dag þegar að ég var að hlusta á fréttirnar, hvert leita þessar konur?
Ætli það sé hópur kvenna sem giftar eru eða hafa verið giftar stjórnmálamanni sem hittast einu sinni í mánuði og deila sögum hvor með annarri. Þær hljóta að þurfa að losa um og fá að tala um þessi svik við einhvern sem að skilur hvað þær eru að ganga í gegnum. Alheimurinn horfir á þær með meðaumkun, meðaumkun sem að þær sjálfsagt vilja ekki einu sinni.
Ég heyrði í útvarpinu í dag að þær gleðikonur sem höfðu unnið fyrir Hr. Spitzer sögðu hann vera erfiðan kúna. Maðurinn er jú að borga rúma 1000$ á tímann, þetta hafa verið fjórir "erfiðir" tímar fyrir gleðikonuna.
![]() |
Spitzer hvattur til að segja af sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.3.2008 | 19:27
Ísland er landið mitt
Persónulega myndi ég vilja sjá Ísland nota sýna kr. og vera sinn eigin herra.
Ég vill að ísland sé íslenskt og því sé stjórnað af fólkinu í landinu, ekki að það blandist samann í einhvern kokkteil. Mikið væri gott ef öll lönd gætu unnið saman og allir verið vinir. En við þurfum nú samt ekki að giftast öllum vinum okkar.
En ég veit svo sem ekkert um pólitík, og kem þessu sjálfsagt ekkert allt of vel frá mér. En ég er stoltur Íslendingur, ég er stolt af því hvað fólk landsins hefur afrekað. Íslendingar hafa rifið sig upp úr moldarkofunum í veröld tækninnar á mjög stuttum tíma. Íslendingar hafa fundið leiðir til að búa til fullt af pening.
Íslendingum er allt fært svo lengi sem að þeir vinna saman, en ekki gegn hvort öðrum. Íslendingar verum vinir.
Ísland er landið mitt
![]() |
Nýr gjaldmiðill innan 3 ára? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
9.3.2008 | 03:19
Bíddu... ha.. hva... því... ég skil ekki!
Hvernig í ósköpunum getur framhjáhald réttlæt ljúgvitni?
Ég get sagt ykkur það að ég myndi ekki líta svo á málin að maðurinn minn mætti ljúga að mér til að halda heiðrinum. Hvað þá ef mann ........ væri að halda framhjá mér. En hann er náttúrulega karlmaður en ekki kona. Ætli karlmenn megi kannski líka bera ljúgvitni við sömu aðstæður þarna á Ítalíu?
Hvernig geta lygar og svik við makann réttlætt ljúgvitni?
Ég hef alltaf sagt við börnin mín að sannleikurinn sé sagna bestur og ætla ég ekkert að fara að breyta því. En ég á náttúrulega ekki stelpu þannig að..... Nei það bara getur ekki skipt máli hvort kynið er. Sannleikurinn skal sagður! Hann á alltaf að vera númer eitt, tvö og þrjú.
![]() |
Ítalskar konur mega ljúga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)