Færsluflokkur: Bloggar

Það er aldrei skítkastið

Ætli það verið gerð Disney mynd um skrímslið Hillary Clinton?

Ort barnagæla?

Eða bara skrifuð barnabók?

Persónulega held ég að Hillary geti gert góða hluti. Það þarf einstaklega sterka persónu til að standa undir öllu sem að þessi kona hefur gengið í gegnum. Að segja að hún sé "skrímsli" finnst mér bæði ljót og barnalegt.

 


mbl.is Kallaði Clinton skrímsli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég skora á Geislavarnir ríkisins

Og spyr þá um leið, hvað þýðir "Tanaður"?

Er til of mikils ætlast frá Ríkinu að það noti Íslensku í auglýsingar sínar?

Geislavarnir ríkisins eru með auglýsingu á mbl til að minna foreldra og unglinga á skaðsemi ljósabekkja, Þar stendur "Tanaður í drasl".

Hvað varð um þá baráttu að halda Íslenskunni eins hreinni og við getum eins lengi og við getum? "Tanaður í drasl" ég trúði ekki mínum eigin augum þegar að ég las þetta. Það er gott og þarft mál að kinna fyrir foreldrum og börnum skaðsemi ljósabekkja en ég skora á Geislavarnir ríkisins til að taka þessa auglýsingu niður eða í það minnsta breyta orðalaginu.

Ég skil að með því að nota afbakaða Íslensku er verið að reyna að ná betur til unglinga. En í alvöru tala er ekki verið að segja þeim að það sé allt í lagi að bulla?


Ég var einmitt að segja frá því...

.. í gær (sjá hér)að ég hefði unnið. "Satt" best að segja er ég enn í sæluvímu W00t


mbl.is Varað við vefsíðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjaftæði er þetta!!

Á nú að fara að telja manni trú um að konur sem eru orðnar 38 ára gamlar séu ekki sexy!?! Það er algert kjaftæði!

Það eru 20 ára guttar að horfa á eftir rassinum á mér og ekki er ég nein Hollywood stjarna.


mbl.is Of gömul í kynlífssenur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég var að vinna stóran vinning!!

Já hvorki meira né minna en "NINE HUNDRED AND FIFTY THOUSAND,TWO HUNDRED AND FIFTEEN DOLLARS"!!!

Þetta er ekkert smá peningur og kemur hann sér vel akkúrat núna. Ljónið þarf að kaupa nýjan bíl vegna vinnunnar og mig langar til að skipta Jeppanum út fyrir 8 manna bíl. Svo á Ripp afmæli í vikunni og það kostar sitt. Afmælisgjöfin auðvitað, boð fyrir fjölskylduna og svo fyrir vinina líka.

Það er svo frábært að það eina sem að ég þarf að gera til að fá peninginn, er að senda einhverjum gaur allar upplýsingarnar mínar. Eða ekki allar, hann er með tölvupóstfangið mitt. Ég var nefnilega valin af einhverjum 105,000 tölvupóstföngum alstaðar af úr heiminum. Ein ekkert smá heppin! Ég meina hverjar eru líkurnar á að maður vinni svona pening fyrir það eitt að hafa tölvupóstfang?! Ég verð að segja það aftur "Ég er ekkert smá heppin" GrinWizard

Ég var svo spennt þegar að ég las að ég hefði unnið að ég var að láta ykkur vita strax! Ég læt ykkur líka vita þegar að ég er komin með peninginn í hendurnar.

Núna ætla ég hinsvegar að flýta mér að senda allar upplýsingarnar mínar til þessa ókunna mans svo að ég geti fengið peninginn minn!

 

Eða ekki....


Er hægt að misnota reiðhjól kynferðislega?

Það stendur í fréttinni á mbl að "Sænskur karlmaður hefur bæst í hóp þeirra kynlegu kvista sem orðið hafa uppvísir að því að misnota reiðhjól kynferðislega."

Þarf það sem misnotað er kynferðislega þá ekki að vera á lífi? Fyrir utan nár auðvitað.

 


mbl.is Hafði mök við dömureiðhjól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reglur - Agi - Skýr mörk

Þetta finnst mér vera gott mál.

Það verður þá kannski meira pláss í fangelsum landsins til að hýsa Íslenska afbrotamenn. Það er of mikið um að afbrotamenn fái bara "Skamm ekki gera þetta aftur" og svo eru þeir farnir aftur til fyrri iðju. Ég er ekki að segja að fólk hafi gott af því að vera lokað inni með öðrum sér líkum og jafnvel stærri afbrotmönnum. Það þarf að byggja þá upp og kenna þeim að lifa eftir lögum og reglum landsins.

Við vitum að agi og skýr mörk eru best til að ala upp börnin okkar. Ætli það sé ekki það sama með það fólk sem að á erfitt með að halda sig innan við mörk laganna. Sendum þeim skýr skilaboð, þetta má og þetta má ekki, ef að þú brýtur þennan ramma þá verður þú send/ur út í horn.


mbl.is Litháískir fangar til Litháen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gæti étið hann

Það var ekki að spyrja að því, hann Ómar er snillingur Happy

Ég hef alltaf verið aðdáandi Ómars og hef sungið mörg lögin hans hátt (falsktWhistling) og skýrt frá því að ég man eftir mér. Lögin hans eru glaðleg svo ég brosi og dilla mér þegar að ég heyri þau.

Takk fyrir allar gleðistundirnar sem að þú hefur gefið mér með lögunum þínum og textum, Ómar R.


mbl.is Ómar rímar við Kírgistan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Egg - Ungi - Hæna - Hani - Valkvíði

Ungarnir breytast í egg -  Móðirin gaggar -  Faðirinn er komin með kamb.

Ég er festist stundum í hlutum hvort sem að það eru föt, fjölskylda eða matur. Ég er tildæmis búin að eiga sömu fjölskyldu allt mitt líf. Það bætist í hana reglulega og það fækkar um einn og einn, en þetta er alltaf fjölskyldan mín.

Ég og Ljónið mitt erum einstaklega hrifin af eggjahvítu, gott, gott prótein. Ungarnir eru líka hrifnir af eggjum, sem betur fer.

Ég hef ekki búið til eggja eða túnfisksalat í langan tíma, en svo fyrir fjórum dögum síðan "Hey! hvernig væri að búa til salat?". Ég hef sem sagt "þurft" að búa til salat á hverjum degi eftir það. Það er bara "Namm, Namm" og "Má ég fá meira". Svo í dag þegar að ég er að setja egg í pott í annað sinn á sama degi (Ætla ekki að búa til salat á morgun!), segir Ripp (elsti unginn) "Hey, eigum við að breytast í svona salat fjölskyldu aftur?"

Ég: Ha? Salat fjölskyldu, það hljómar nú ekki vel

Ripp: Nei ég meina svona alltaf að borða salat.

Ripp er skælbrosandi og þvílíkt ánægður með þetta allt saman, en þetta fékk mig til að hugsa:

Er eitthvað að mér?

Af hverju á ég svona erfitt með að breyta út af vananum?

Ég geng yfirleit í sömu fötunum þangað til að það eru komin "göt", þótt svo að ég hafa keypt mér ný. Ég nota veskin mín í svo langan tíma eftir þeirra "normal" lífsdaga að ég er búin að gera við þau aftur og aftur og aftur.....

Ljónið mitt hefur gefið mér veski og seðlaveski oftar en einu sinni og sagt "My Love, I think it is time".

Já og SKÓR! Ekki tala um þá. Það liggur við að það komi göt á sokkana mína vegna þess hversu eyddir skórnir mínir eru.

Mér finnst bara best að vera í "notuðum" fötum. Fötum með sögu.

Þetta hefur sjálfsagt fullt með það að gera að ég bara get ekki valið. Ég er með valkvíða aldarinnar (er hægt að segja svona?). Helst vil ég fá fötin mín, töskur og skó gefins í jólagjöf eða afmælisgjöf. Þá þarf ég ekki að velja!

Systir mín er sem betur með eintaklega gott auga fyrir því hvað er töff (að mér finnst) og hvað fer mér vel. Ég hef ósjaldan hringt í hana og sagt "Elsku systir, nú vantar mig buxur" og viti menn þessi elska finnur alltaf tíma til að fara með stóru/litlu systir að versla.

Ekki það að ég gangi bara í lörfum hahaha þó svo að þetta hljómi sjálfsagt svoleiðis. Og ég geng ekkert í fötum sem að öðrum finnst töff en mér ekki. Enda er ég ekkert að eltast við eitthvað tískudót. Ég en mér finnst bara miklu betra að þurfa ekki að ákveða ALEIN hvað ég á að kaupa.

Talandi um föt, ég þarf að fara að versla vorfötin mín, besta að hringja í systu.


Enn einn hryllingurinn

"You'd go to bed at night, sleeping, and all of a sudden your arms would be held down and the next thing you know you're getting raped," recalled Peter Hannaford, who spent the first 12 years of his life at the former children's home.

"You were subject to constant abuse ... It was every night, and you were scared to go to bed."

He wants the old children's home destroyed.

Þetta fann ég á fréttavef CNN.

Svo fór ég á síðuna telegraph.co.uk og þar las ég þvílíkan viðbjóð, dæmi:

"The building, where a human skull was unearthed on Saturday, is the subject of an intense police search operation amid fears that the bodies of up to seven children could be buried there."

"We found some shackles lying around the grounds.

"I picked them up. They were heavy shackles mounted on a wooden block. It was gruesome."

"Maths teacher Andrew Jervis-Dykes was jailed in April 1999 for indecently assaulting six pupils at Victoria College who he plied with alcohol then abused in their beds during Naval Combined Cadet Force yachting trips between 1984 and 1993.

According to an independent report into the case, allegations about Jervis-Dykes surfaced in 1992 then again in 1994. Both times, the school's headmaster Jack Hydes failed to notify the police or investigate further, the report said."

Óhuggnanlegt að ungar og saklausar sálir skuli þurfa að lifa annan eins hrilling. Það er vonandi að nú verði þetta mál unnið rétt og engu sópað undir teppið. Það eiga einhverjir að svara fyrir þennan óhuggnað.

Maður heldur alltaf að hrillingmyndir séu svo óraunverulegar, en er það svo óraunverulegt ef að mannðurinn getur látið sér detta það í hug? Sumir búa til bíómyndir, aðrir fremja verknaðinn.

Hjatað Heart mitt grætur  Crying


mbl.is Barnslíka leitað á Jersey
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband