Færsluflokkur: Bloggar

Hvernig getur fólk verið svona grimmt?

Við erum að tala um unglinga hér, dreng og stúlku, hvað fær þau til að fremja svona voðaverk?!

Ég skil ekki svona grimmd, þau voru ekki að sækjast eftir neinu öðru en að skemmta sér við að pína stúlkuna! oohhhh ég fæ svo illt í hjartað.

Ekki veit ég hvort að heimurinn fari síversnandi eða þá að við heyrum bara meira af því sem er að gersat í honum. Ég man bara ekki eftir að hafa nokkurn tíman heyrt svona áður.


mbl.is Misþyrmdu fatlaðri stúlku í 6 klukkustundir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta sýnir hvað menn eru bilaðir

"Neitaði Bellfield að vera viðstaddur er dómurinn var kveðinn upp og bar fyrir sig neikvæðri umfjöllun í kjölfar dómsins."

Bjóst maðurinn við því að fólk myndi hrósa hann!


mbl.is Fékk lífstíðarfangelsi án náðunarmöguleika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er bara að krossa...

putta, fætur, tær og vona hið besta.

Það er nú alveg komin tími til að þeir sem stjórna heiminum hugsi um afleiðingarnar sem að við mannfólkið höfum á heimilið okkar. Við erum föst á jörðinni, alla vega eins og er, og ef að við eyðileggjum jörðina þá er heimilið okkar farið.


mbl.is Bindandi markmið samþykkt?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er ekki hissa..

þó að Will Smith hafi farið í mál út af þessu.

Ég er ansi hrædd um að ég yrði reið, ef að einhver færi að halda því fram að ég segði að  Adolf Hitler hafa verið góður maður.


mbl.is Will Smith vann skaðabótamál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

:o) Þetta eru gleðilegar fréttir

Eins yndislegt og það er að horfa á górillur og apa annað hvort í sjónvarpi eða í dýragörðum þá fær ég alltaf sorgarsting í hjartað. 

Ég man fyrsta skiptið sem að ég sá simpansi eða mannapa eins og að þeir eru líka kallaðir.            Ég fór með skólanum í sædýrasafnið sem var í Hafnarfyrði. Þegar að ég kom inn í bygginguna þar sem að mannaparnir voru heyrði ég hróp og köll í krökkunum, sem voru á leiðinni út. Aparnir voru að henta saur í krakkana, þeir kúkuðu í hendurnar á sér og köstuðu svo saurnum í okkur, mér brá og ég stoppaði og horfði á dýrin. Mig langaði til að fara að gráta, þarna voru þessi dýr í pínulitlum búrum full af skít, það var nákvæmlega ekkert fyrir þá að hafa þarna inni. Sumir apanna voru að betla, sjálfsagt vanir því að fólk gæfi þeim nammi eða eitthvað slíkt.

Öpunum hundleiddist og þeim leið illa þarna, það eina sem að þeim datt í hug var að henda eigin saur í fólkið sem koma og starði á þá. Segir það okkur ekki neitt? Þeir voru að gefa skít í okkur, "þið þarna aumingjar sem lokið okkur inni, þetta er handa ykkur!".

Þarna fékk ég sorgarstinginn í hjartað.

Síðan þá hef ég farið í aðra dýragarða, dýragarða þar sem að betur er hugsað um dýrin. En mér líður alltaf jafn illa. Í fyrsta skiptið sem að ég fór í DC dýragarðinn hitti ég risastóran silfurbak. Við vorum reyndar sitthvoru megin við einhverskonar gler. Þessi stóri górillu maður sat þarna klesstur upp við glerið, hann snéri hliðinni að glerinu. Ég settist við hlið hans og horfði á andlit hans, hann var svo sorgmæddur . Mig langaði svo að geta snert hann, huggað hann, sagt honum að mé þætti leitt að hann væri fastur þarna inni. Við horfðum á hvort annað í smá tíma en svo snéri hann sér undan. Ég stóð upp og fór í fangið á Ljóninu mínu, hann hélt mér þétt á meðan að ég snökti og jafnaði mig.

Ég óska af öllu mínu hjarta að fjallagórillurnar verði öruggar fyrir mannfólkinu.


mbl.is Fágæt samvinna til að bjarga górillum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er þetta sem ég er að tala um

Gefum þeim 20 ár i viðbót og tölvurnar verða farnar að segja okkur hvenær við megum pissa, borða og sofa! PinchW00t


mbl.is Forritin læra af sjálfsdáðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinamissir - Unglinga sorg

Ég er að horfa upp á son minn (13 ára) ganga í gegnum þá mikklu sorg að missa vin sinn. Ég er búin að hugsa mikið um það hvort að ég eigi að blogga um þetta og ég er enn ekki viss. En það eru nokkrir punktar sem að ég verð að koma frá mér núna, og kannski kemur hitt seinna.

Talið við börnin ykkar, ef að unglingarnir okkar geta treyst okkur og geta talað við okkur um hvað sem er þá eru minni líkur á að þau taka sitt eigið líf.

Ef að börnin ykkar missa vin, hvort sem að það er sjálfsvíg, slys eða vegna veikinda, þá fylgist vel með þeim. Þau eru að hugsa svo margt og þurfa hjálp að vinna úr þessu öllu. Oft fatta börnin ekki einu sinni spurninguna sem brennur á þeim, svo að við verðum að vera vakandi og hlusta á þau, og koma með svör við óspurðum spurningum.

 

Þessir atburðir í suður-Wales eru óhugnanlegir og sorglegir. Spurningin er: Hvað hefði verið hægt að gera fyrir þessi börn? Ég trúi að það sé tenging á milli þeirra allra og ég vona að hún finnist sem fyrst, það gæti bjargað lífum.


mbl.is Sjálfsvíg ungmenna í Wales
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Finnst ykkur þetta ekki vera smá geðveila?

c/p  "Það voru samtökin Hizb ut-Tahrir,sem efndu til umræddrar samkomu síðastliðinn föstudag en þau eru samtök öfgasinnaðra múslíma sem m.a. vilja afnema lýðræði og komaá sharia lögum  í Danmörku."

Ég fæ nú bara hroll.


mbl.is Talsmaður danskra múslíma harðlega gagnrýndur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta minnir mig á...

.. allt of margar fréttir . Ég bloggaði um eina þeirra og fékk þar óvænt svar. Þetta svar lét mig ekki í friði og ég varð að blogga um það.

Þetta gerir mig órólega, hvað með öll börnin sem að ég þekki í framhaldsskólum? Ég bið til Guðs um að enginn geri skotárás hjá þeim.

 

 

 


mbl.is Árásarmaðurinn nafngreindur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blóm - Konfekt - Vanþakklæti - samviskubit

Japps þetta er dagurinn í dag hjá mér.

Ég fékk sendingu áðan, fallega blómaskreytingu í vasa, konfektkassa og kort með fallegum orðum.

Ég ætti að vera hoppandi ánægð, ég varð að fá þessa fallegu gjöf frá ljóninu og ungunum okkar, en.....

Ég vill ekki fá sendingu, ég vill að hann/þeir rétti mér þetta sjálfir, en ekki einhver kona sem að ég hef aldrei séð áður, "Kvitta takk".

Ég vill ekki falleg orð skrifuð af ókunnugum.

Ég vill ekki eyða pening í óþarfa..... Ég held reyndar að það pirri mig mest. Já og ég veit að ég er að vera vanþakklát.

Stórt knús og koss hefðu sko alveg dugað mér (meiri vanþakklæti Blush).

Ég veit að þetta er falleg hugsun hjá Ljóninu mínu og kannski er hann alinn upp við að það sé meira rómó eða spés þegar að maður fær gjöfina senda. Æ ég veit ekki.... En eitt er þó víst að ég verð að vera voða voða glöð og ánægð í rödd, andliti og líkamshreyfingum þegar að Ljónið og ungarnir koma heim.

Ekki vill ég sýnast vanþakklát.....

Ég er með samviskubit yfir að mér líði svona, ég veit að þetta er gert af ást og góðum hug. Kannski ef að ég borða allan konfektkassann núna strax þá líði mér betur W00tWhistling

 


mbl.is Tvöföld blómasala í vikunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband