Ord ad sönnu

Stundum tekur lífid völdin og setur í hendur okkar verkfœri til ad vinna med. Ég fann thetta á annarri vefsídu og thar sem ad thad passar svo vel vid sídasta blogg mitt thá fékk ég thad ad láni.

Við sannfærum okkur sjálf að lífið verði betra eftir að við giftum okkur, eignumst börn og síðan annað barn. Síðan pirrum við okkur á því að krakkarnir verði nóg gamlir og við erum sannfærð um að við verðum betur stödd þegar að því kemur. Næst erum við örg yfir því að við verðum að eiga unglinga. Við munum svo sannarlega verða hamingjusöm þegar því skeiði verður lokið.
Við teljum sjálfum okkur trú um að líf okkar verði fullkomið þegar maki okkar tekur til í sínum málum, þegar við fáum betri bíl, þegar við fáum tækifæri á að fara í gott frí eða þegar við setjumst í helgan stein. Sannleikurinn er sá að það er ekki og verður aldrei betri tími til að vera hamingjusamur en einmitt núna. Ef ekki núna, hvenær þá. Lífið verður alltaf fullt af áskorunum og viðfangsefnum. Það er best að viðurkenna þetta fyrir sjálfum okkur og ákveða að vera hamingjusöm engu að síður, á hverjum degi.
Vinur minn sagði eitt sinn. Í langan tíma hafði mér virst sem líf mitt væri í þann mund að hefjast- hið raunverulega líf. En alltaf var einhver hindrun í veginum, eitthvað sem hann þurfti að eignast fyrst, einhver óútkljáð mál, mig vantaði tíma til að sinna hlutunum og alltaf voru einhverjar ógreiddar skuldir. Þá gæti ég loks byrjað að lifa lífinu. Að lokum rann upp fyrir mér ljós, þessar “hindranir” eru líf mitt. Þetta sjónarhorn hjálpar okkur að sjá það að það er engin leið til að hamingjunni. Hamingjan er leiðin.
Svo að varðveittu og lærðu að meta hvert augnablik sem þú átt. Lærðu að meta það meira vegna þess að þú deildir því með einhverjum sérstökum, nógu sérstökum til að eyða tíma þínum með...og mundu að tíminn bíður ekki eftir neinum. Hættu að bíða, bíða eftir að þú klárir þetta eða hitt, eftir að þú missir nokkur kíló, eftir að þú náir á þig nokkrum kílóum, hættu að bíða eftir að þú eignist börn og barnabörn og eftir að börnin flytji að heiman, eftir að þú byrjir að vinna, að þú hættir að vinna, að þú giftist, að þú skiljir, eftir laugardagskvöldinu eða sunnudagsmorgninum, hættu að bíða eftir nýja bílnum, eftir að þú sért búin að borga upp bílinn eða húsið, eftir vorinu, sumrinu, haustinu, vetrinum. Hættu að bíða eftir að þú fáir þér drykk og svo að bíða eftir að það renni af þér. Hættu að bíða eftir að þú deyir.... Hættu að bíða eftir að ákveða að,
Það er enginn tími betri en einmitt núna, að vera hamingjusamur... Hamingjan er ekki áfangastaður, heldur ferðalag.
Í dag er tími til að: vinna eins og þú þurfir ekki á peningum að halda, elska eins og enginn hafi nokkurn tíma sært þig, dansa eins og enginn sé að horfa.....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Dansaðu

Ómar Ingi, 2.4.2009 kl. 19:14

2 Smámynd: Hannes

farðu að skemmta þér gamla.

Hannes, 2.4.2009 kl. 19:23

3 Smámynd: Sporðdrekinn

:o) Já ég vœri sko til í smá dans :o) En ég lœt ströndina duga í bili ;o) Er ad fara í smá frí med Ungunum. Ég œtla ad reyna ad stela tíma fyrir mig eina thar, setjast vid sjóinn og láta öldurnar bera thunga og slen í burtu og fylla mig af gledi og orku :o)

Thar til nœst elsku bloggVinir mínir, njótid ykkar :o)

E.S.

Hver veit nema ad ég dansi bara í öldunum :o)

Sporðdrekinn, 3.4.2009 kl. 04:08

4 Smámynd: Dísa Dóra

Svo sannarlega sönn orð

Vonandi verður fríið þitt bara yndislegt

Dísa Dóra, 3.4.2009 kl. 21:14

5 Smámynd: www.zordis.com

Njóttu frísins þíns og að dansa við öldurnar er bara unaður!

www.zordis.com, 6.4.2009 kl. 07:31

6 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Rétta augnablikið er núna

Hólmdís Hjartardóttir, 8.4.2009 kl. 16:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband