Jákvæðni skiptir máli!

Dag einn bað kennari nemendur sína að skrifa nöfn bekkjarfélaganna á blað.
Þeir áttu að skrifa eitt nafn í hverja línu og hafa auða línu á milli.
Síðan bað hún nemendur sína að hugsa um það besta um hvern og einn og
skrifa það fyrir neðan nafnið. Þegar nemendur fóru úr tíma skiluðu þau
blöðunum til kennarans sem fór með þetta heim og bjó til lista yfir hvern
nemanda og safnaði saman því sem bekkjarfélagarnir höfðu skrifað. Síðan
fengu nemendurnir þetta í hendurnar daginn eftir. Þegar þeir lásu þetta
urðu þeir hissa á öllu því jákvæða sem bekkjarfélagarnir höfðu skrifað.
Þeir höfðu ekki gert sér grein fyrir að þeir skiptu svona miklu máli.
Kennarinn vissi ekki hve mikið nemendurnir ræddu þetta sín á milli eða við
foreldrana en þetta hafði tilætlaðan árangur. Nemendurnir urðu ánægðari með
sig og aðra í bekknum, þeim leið betur.

Lífið hélt áfram.

Mörgum árum seinna lést einn nemendanna sem hét Magnús og kennarinn ákvað
að vera viðstaddur jarðarförina. Einn vinur hins látna gekk til hennar og
spurði hvort hún hefði verið kennarinn hans og sagði að Magnús hefði talað
mikið um hana. Foreldrar hins látna komu einnig til hennar og vildu sýna
henni svolítið. Þau höfðu fundið samanbrotið blað í veski Magnúsar og var
það listinn með öllu jákvæðu atriðunum frá bekkjarfélögunum sem kennarinn
hafði fengið honum fyrir mörgum árum. "Þakka þér fyrir að gera þetta,því
eins og þú sérð þá skipti þetta hann miklu máli" sagði móðir Magnúsar.
Fyrrum bekkjarfélagar tóku undir það og sögðu að þessi listi hefði fylgt
þeim öllum gegnum lífið og skipt þá mjög miklu máli. Þetta var eitt af Því
sem þeim þótti vænst um. Þegar gamli kennarinn heyrði þetta settist hún
niður og grét, bæði syrgði hún Magnús og svo var hún hrærð yfir því að hafa
snert nemendur sína með þessu uppátæki.

Flest okkar hegðum við okkur þannig eins og að við höfum gleymt því að
lífið endar einn góðan veðurdag. Enginn okkar veit hvenær sá dagur verður.
Þess vegna bið ég þig að segja við þá sem þér þykir vænt um hvað þeir séu
þér mikilvægir og eigi sérstakan stað í hjarta þér. Gerðu það oft áður en
það verður of seint.

Sýndu að þér er annt um vini þína. Mundu að
þú uppskerð eins og þú sáir. Mundu að þú ert mikilvægur einhverjum. Vona að
dagurinn verði þér fínn og sérstakur því þú skiptir miklu máli!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Saga góð

Takk.

Ómar Ingi, 5.5.2009 kl. 02:18

2 Smámynd: Sporðdrekinn

Œ já thad er svo gott ad fá smá ábendingu um thad góda í kringum okkur.

Sporðdrekinn, 5.5.2009 kl. 14:57

3 Smámynd: Sporðdrekinn

haha átti ad vera "ámynningu" ;o)

Sporðdrekinn, 5.5.2009 kl. 14:58

4 Smámynd: Hannes

Falleg saga. Kennarar geta haft mikill áhrif á líf barnanna sem þau kenna bæði til hins betra og hins verra. Það veitir ekki af að tala um eitthvað fallegt í kreppunni gamla.

Hannes, 6.5.2009 kl. 00:50

5 Smámynd: Sporðdrekinn

Já og vid öll, vid höfum öll áhrif á börnin í lífi okkar.

Já segdu unginn minn ;o)

Sporðdrekinn, 6.5.2009 kl. 01:29

6 Smámynd: Hannes

Sem betur fer eru enginn börn í mínu lífi og ég forðast þau alveg eins og kjarnorkuvopn fyrirgefðu ég vil frekar vera inann um kjarnorkuvopn og geislamengun en börn.

Í fyrra var ég í partýi og fólk spurði vin minn hvaða gamli kall þetta væri og átti við mig héldu að ég væri um 40 þrátt fyrir að ég sé bara 26ára.

Hannes, 6.5.2009 kl. 01:44

7 Smámynd: www.zordis.com

Fegurðin hefur svo fallega geislun! Við eigum að miðla henni eins og enginn væri morgundagurinn!

Knús í daginn þinn frá þeirri fertugu sem lítur út eins og 26 heheh .

www.zordis.com, 6.5.2009 kl. 15:19

8 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Fallegur boðskapur......jákvætt feedback er öllum nauðsynlegt....og jákvæðni er smitandi

Hólmdís Hjartardóttir, 7.5.2009 kl. 01:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband